Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1959, Blaðsíða 29

Ægir - 15.12.1959, Blaðsíða 29
ÆGIR — AFMÆLISRIT 27 Við ársbyrjun 1915 cr útlitið nokkuð annað. Farmgjald er nú þegar orðið svo hátt, að til vandræða horfir, salt og kol er hér af skorn- um skammti, og fáist það flutt hingað til lands, mun það verða mjög dýrt, og auk þess er nú bannað að nokkur útlendur botnvörpungur niegi koma á enska höfn eftir 1. febrúar. Fyrir sjávarútveginn eru því horfur binar verstu, en vonandi er að úr þessum ósköpum greiðist brátt. Skólnski'p. í marzblaðinu er grein eftir Matthías Olafsson, erindreka Fiskifélagsins, um skólaskip. Er þar rætt um nauðsyn þess að íslendingar eignist skólaskip, hvað kenna skuli á slíku skipi og hvernig það skuli rekið. Grein þessi verður Sveinbirni Egilsyni tilefni til hugvekju, er hann nefnir „Hvaða mál á að tala á skólaskip- inu?“ Þar stendur m. a.: . . . en hvaða mál á að tala á þessu skipi? Þeim sem skrifa og tala um hið hroðalega mál, sem sjómenn bér nota á skipum, mun ekki þykja sú tilhugsun góð að á íslenzku skólaskipi heyrist annar eins viðbjóður. Eins og annað hér verður allt að vera hreint, lireinir íslend- ingar og lirein íslenzka. Til eru íslenzk orð, því að í íslenzkri orða- bók standa þau, sem niætti setja saman og nota sem skipunarorð á briggskipi, sem er sú tcg- und skipa, sem br. M. Ó. stingur upp á að skólaskipið sé. Vil ég leyfa mér að sýna mönn- um hvernig þær samsetningar líta út á papp- írnum og geta þeir þá máske skilið hve óhand- bærar þessar samsetningar og orð eru þegar á að nota þau til að segja fyrir á skipsfjöl. Ég ætla hér aðeins að benda á nokkrar sam- setningar á stórmastri á briggskipi og læt dönsku heitanna getið um leið. Stormast = meginsigla, Storemærs = mcgin- siglupallur, Storemærsstang = meginsiglupall- stöng, Storebramsaling = meginhásiglureiða- slá, Storebramstang = meginhásiglustúfu'r, Storebrambardun = meginhásiglustúfshöfuð- benda. Tunga þeirra væri liðug, sem gætu greinilega skipað þessa setningu fyrir: Taktu tusku og vefSu um meginhásiglustúfshöfuS- bendana þar sem hún liggur í raufinni á meg- inhásiglustúfsreiSaslánni, og ekki nóg hér með, þetta verður hásetinn sem skipunina fær að endurtaka. Nú koma rárnar: Storraa = meginrá, Store- merseraa = meginpallseglsrá, Storebramraa = meginhásiglurá, Storemærseraatoplente = meginpallseglsrástillir meginpallseglsstjórn- borðsrástillir, (nú fer að þyngjast, piltar). Storebramstyrbordstoplente = meginbá- isglurárstjórnborðsrárstillir. . . . Það er langt orð á dönsku Storebrambrasstyrbordsblok- skive, en það heitir líka á íslenzku meginhá- siglurársstjórnborðsaktaumsskegluhjól. . . . Hlutafjársöfnun til Eiviskipafélagsins. I apríl—maí blaðinu 1916 er skýrsla um innkomið hlutafé Eimskipafélags Islands hinn 4. apríl 1916, flokkað eftir kaupstöð- um og sýslum. Alls voru þá innkomnar kr. 201.460, eða kr. 2,29 á hvern íbúa lands- ins að meðaltali. Hæsta meðaltölu hefur Akureyri kr. 6,44, aðrir kaupstaðir eru fyrir neðan kr. 1,50 og Hafnarfjörður lægstur með 28 aura. Hæst af sýslunum er Norður-Þingeyjarsýsla með kr. 6,29, en lægst Dalasýsla með 62 aura. Styrjöldin og fiskveiöarnar. Ritstjórinn skrifar í apríl—maí blaðið 1917 um vertíðina, sem þá er að ljúka. Ber sú frásögn með sér, að áhrifa frá styrjöldinni er mjög tekið að gæta, svo sem í skorti á nauðsynjum til útgerðar- innar. Mest allur flotinn varð að hætta veiðum áður en vertíð lauk vegna kola- og olíuleysis, og þó einkum saltleysis. Eftir að alger þurrð varð á salti, tóku nokkrir bátar upp veiðar, sem þá höfðu lengi legið niðri, en það voru hákarlaveiðar. Segir í greininni frá mótorskipinu Tý, sem fór á hákarlaveiðar frá Reykjavík, mannað vestfirzkum sjómönnum, sem vanir voru hákarlaveiðum: „Týr“ lagði fyrst hér í Faxabugt, en bá- karlinn var smár, sem þar fékkst, og hélt hann því þaðan og lagðist djúpt af Eldey og þar var nóg fyrir, enda hefir hákarlinn haft tíma til að aukast og margfaldast síðan „Gylfi“ og „Reykjavíkin", hans svörnu óvinir bættu að ónáða hann, að ógleymdum „Geir“. Legufæri Týs voru ekki nógu sterk, svo að hann slitnaði upp eftir stutta iegu; hafði þá fengið 66 skrokka, sem gáfu af sér um 40 tunn- ur lifrar, sem sýnir að hákarlinn hefur verið vænn. ... Beita var heldur ekki eins og skyldi, var bæði hörgull á rommi, en það vill hann bafa, því hann er non-templar, en þó fékk hann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.