Ægir - 15.12.1959, Blaðsíða 130
128
ÆGIR — AFMÆLISRIT
Það er illt til þess að vita, að þessi
þjóðhoíla fæða skuli víkja fyrir miður
hollum erlendum fæðutegundum. Harð-
fiskurinn hélt tönnunum hvítum og stælti
þær við hæfilega áreynslu og er það allt
annað en ýms sú fæða gerir, sem þjóðin
leggur sér nú til munns.
Nýlega las ég í norsku blaði, að fyrsti
Norðmaðurinn, sem flutti út skreið, hafi
verið Þórólfur sonur Úlfs (Kveldúlfs) en
Þórólfur var bróðir Gríms (Skallagríms)
föður Egils á Borg í Borgarfirði. Þórólf-
ur flutti skreið sina seinni hluta 9. aldar
til Bretlands. Hafði hann og menn hans
aflað fisksins á handfæri. Er gaman að
vita það, að þessi fornfrægi frændi okk-
ar, Þórólfur. skuli fyrstur hafa verið
skreiðarútflytjandi frá Noregi. Líklega
hefði hann orðið skreiðarframleiðandi á
íslandi, hefði honum enzt aldur til að
sigla með frændum sínum út til íslands,
en eins og kunnugt er lét Haraldur kon-
ungur hárfagri drepa Þórólf, og er sagt
hann hafi sjálfur veitt honum banasárið.
Skreiö í hjöllum.
En snúum okkur nú að skreiðinni fyrir
hina er'endu markaði.
Eins og fyrr segir var hún fyrst á þess-
ari öld verkuð til útflutnings 1935 og eru
nánari upplýsingar urn þetta að finna í
skýrslu Fiskimálanefndar frá þeim tíma.
Fer hér á eftir skýrsla um magn
skreiðar útflutt á árunum 1935 til og
nmð 1957.
Heildarútflutningur skreiðar.
Ár Smál. Ár Smál.
1935 80.5 1947 0.4
1935 546.7 1948 0.0
1937 851.3 1949 4.3
1938 468.8 1950 93.6
1939 640.5 1951 1.044.7
1940 393.4 1952 2.355.8
1941 496.4 1953 6.500.0
1942 253.4 1954 12.935.0
1943 198.2 1955 6.552.8
1944 225.9 1956 11.499.9
1945 296.7 1957 10.154.8
1946 107,7
Langmestur hlutinn
af skreiðarfram-
leiðslunni er fluttur
til Nigeriu, en nokk-
uð fer til ítalíu.
Bæði þar og í Sví-
þjóð hefur fengizt
hæst verð. Þau lönd
bæði vilja eigi annan
fisk en annan og
fyrsta flokks, enda
oftast greiddur með
hæsta verði. Hins-
vegar fer þriðji
flokkurinn jafnan tii
Afríkulanda og að
langmestum hluta til
Nigeríu.
Það kann að láta
hálf illa í eyrum, að
íslendingar fram-
leiði nær eingöngu
þriðja flokks skreið,
og hafa ábyrgir aðil-