Ægir - 15.12.1959, Blaðsíða 43
ÆGIR — AFMÆLISRIT
41
þar til nefna skonnorturnar „Haukur“,
„Svala“ og „Rigmor", eimknúnu skonn-
ortuna „Frances Hyde“ og barkskipið
„Eos“. Þá keypti h. f. Kveldúlfur hingað
til lands seglskonnorturnar „Huginn“ og
„Muninn" og notaði félagið þær einkum
til fiskflutninga.
Eimskipafélagið varð fyrir því óhappi,
að „Goðafoss" strandaði við Straumnes
30. okt. 1916 og bar skipið þar beinin.
Tókst félaginu að festa kaup á norsku
skipi, sem hlaut nafnið „Lagarfoss" og
hingað kom í maí 1917. Varð ekki breyt
ing á skipastóli félagsins fyrr en „Goða,-
foss“ annar bættist við 1921. Eftir að
„Sterling" strandaði voru strandferðir í
ólestri, og rigndi úmkvörtunum yfir
stjórnina og áskorunum um að bæta úr
ríkjandi ástandi strandsiglinganna. Var
samið um smíði strandferðaskips 1922, og
kom það hingað til lands í apríl 1923.
Varð það eldri „Esja“, sem var hér í
strandferðum þar til yngri „Esja“ kom
til sögunnar, en var þá seld úr landi. Má
segja, að „Esja“ sé vísir að útgerð þeirri,
sem nú heitir Skipaútgerð ríkisins. Á
þessum árum fer aukning farþega- og
flutningaskipa hægt. Eimskipafélagið
lætur smíða „Brúarfoss" 1927 og kaupit'
„Selfoss" 1928. Á árinu 1930 bætist
„Dettifoss" í hópinn, og þá eru skip fé-
lagsins orðin 6 að tölu.
Næsta áratug stendur skipaeign félags-
ins í stað, en á styrj aldarárunum keypti
Eimskip „Eddu“ og „Kötlu“, eins og síðar
er sagt. „Gullfoss varð innligsa í Kaup-
mannaliöfn í stríðsbyrjun og var þar svo
illa leikinn á styrjaldarárunum, að félag-
ið taldi ekki ráðlegt að kosta upp á gagn-
gera viðgerð á skipinu, sem þá var orðið
30 ára gamalt. Var „Gullfoss" seldur til
Færeyja. Þetta fyrsta skip Eimskipafé-
lagsins var mesta happafleyta og var um
langt skeið aðalfarþegaskip íslendinga
milli landa. Á styrjaldarárunum varð fé-
lagið fyi’ir miklu áfalli. Tvö skip þess
„Dettifoss" og Goðafoss“ voru skotin i
kaf samfara miklu manntjóni. Með missi
þessara þriggja skipa var stórt skarð
höggvið í skipastól félagsins og því brýn
nauðsyn að efla flota Eimskipafélagsins
jafnskjótt og um hægðist. Þessari stefnu
hefur verið fylgt síðan og félagið aukið
skipastólinn af fremsta megni. Vestan
um haf keypti félagið 1948 „Tröllafoss",
sem enn er stærsta skip þess 3997 lestir.
1948 var lokið smíði þriggja skipa sömu
gerðar: „Dettifoss" (2918 lestir) „Goða-
foss (2905 lestir) og „Lagarfoss“ (2933
lestir). Um það leyti er „Reykjafoss“
seldur úr landi. Næst kemur „Gullfoss“
hinn nýi 1950, 3858 br. lestir, aðal far-
þegaskip félagsins og flaggskip þess. Ári
síðar bætist „Reykjafoss“ við 2553 lestir,
smíðaður á Ítalíu. „Tungufoss" 1176 lest-
ir kemur 1953, „Fjallfoss“ 1796 lestir
kemur ári síðar og loks „Selfoss" 2339
lestir 1958. Af þessari upptalningu má
sjá, að vel hefur verið að því unnið að
auka og endurnýja skipakost Eimskipa-
félags Islands. Á þessum árum var „Lag-
arfoss“ eldri og gamli „Selfoss" seldir til
niðurrifs, en „Fjallfoss“ og „Brúarfoss“
seldir úr landi. Flest skip félagsins geta
að meira eða minna leyti flutt frystan
varning í lestum, og er það mjög mikil-
vægt fyrir vaxandi freðfiskframleiðslu
landsmanna.
Árið 1928 kaupir nýstofnað félag, Eim-
skipafélag Vestfjarða, eimskipið „Vestri“
924 br. lestir og gerði það út þar til skip-
ið var selt til Noregs til niðurrifs 1934.
Heimilisfang skipsins var Flateyri.
Eimskipafélag Reykjavíkur var stofnað
1932 og keypti frá Noregi gufuskip, sem
hlaut nafnið „Hekla“ 1215 br. lestir og
1934 eignaðist féla.gið annað skip, sem
hlaut nafnið „Katla“, 1209 br. lestir.
I ófriðarbyrjun keypti h. f. Kveldúlfur
„Heklu“, en hún var skotin í kaf í júlí
1941 á leið til Kanada. Katla var seld
Eimskipafélaginu, sem þá hlaut nafnið
„Reykjafoss“ 1948 lét félagið smíða nýtt
flutningaskip í Svíþjóð, sem hlaut nafnið
„Katla“ 1331 br. lest og 1957 lætur fé-
lagið smíða 500 lesta flutningaskip,