Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1959, Page 43

Ægir - 15.12.1959, Page 43
ÆGIR — AFMÆLISRIT 41 þar til nefna skonnorturnar „Haukur“, „Svala“ og „Rigmor", eimknúnu skonn- ortuna „Frances Hyde“ og barkskipið „Eos“. Þá keypti h. f. Kveldúlfur hingað til lands seglskonnorturnar „Huginn“ og „Muninn" og notaði félagið þær einkum til fiskflutninga. Eimskipafélagið varð fyrir því óhappi, að „Goðafoss" strandaði við Straumnes 30. okt. 1916 og bar skipið þar beinin. Tókst félaginu að festa kaup á norsku skipi, sem hlaut nafnið „Lagarfoss" og hingað kom í maí 1917. Varð ekki breyt ing á skipastóli félagsins fyrr en „Goða,- foss“ annar bættist við 1921. Eftir að „Sterling" strandaði voru strandferðir í ólestri, og rigndi úmkvörtunum yfir stjórnina og áskorunum um að bæta úr ríkjandi ástandi strandsiglinganna. Var samið um smíði strandferðaskips 1922, og kom það hingað til lands í apríl 1923. Varð það eldri „Esja“, sem var hér í strandferðum þar til yngri „Esja“ kom til sögunnar, en var þá seld úr landi. Má segja, að „Esja“ sé vísir að útgerð þeirri, sem nú heitir Skipaútgerð ríkisins. Á þessum árum fer aukning farþega- og flutningaskipa hægt. Eimskipafélagið lætur smíða „Brúarfoss" 1927 og kaupit' „Selfoss" 1928. Á árinu 1930 bætist „Dettifoss" í hópinn, og þá eru skip fé- lagsins orðin 6 að tölu. Næsta áratug stendur skipaeign félags- ins í stað, en á styrj aldarárunum keypti Eimskip „Eddu“ og „Kötlu“, eins og síðar er sagt. „Gullfoss varð innligsa í Kaup- mannaliöfn í stríðsbyrjun og var þar svo illa leikinn á styrjaldarárunum, að félag- ið taldi ekki ráðlegt að kosta upp á gagn- gera viðgerð á skipinu, sem þá var orðið 30 ára gamalt. Var „Gullfoss" seldur til Færeyja. Þetta fyrsta skip Eimskipafé- lagsins var mesta happafleyta og var um langt skeið aðalfarþegaskip íslendinga milli landa. Á styrjaldarárunum varð fé- lagið fyi’ir miklu áfalli. Tvö skip þess „Dettifoss" og Goðafoss“ voru skotin i kaf samfara miklu manntjóni. Með missi þessara þriggja skipa var stórt skarð höggvið í skipastól félagsins og því brýn nauðsyn að efla flota Eimskipafélagsins jafnskjótt og um hægðist. Þessari stefnu hefur verið fylgt síðan og félagið aukið skipastólinn af fremsta megni. Vestan um haf keypti félagið 1948 „Tröllafoss", sem enn er stærsta skip þess 3997 lestir. 1948 var lokið smíði þriggja skipa sömu gerðar: „Dettifoss" (2918 lestir) „Goða- foss (2905 lestir) og „Lagarfoss“ (2933 lestir). Um það leyti er „Reykjafoss“ seldur úr landi. Næst kemur „Gullfoss“ hinn nýi 1950, 3858 br. lestir, aðal far- þegaskip félagsins og flaggskip þess. Ári síðar bætist „Reykjafoss“ við 2553 lestir, smíðaður á Ítalíu. „Tungufoss" 1176 lest- ir kemur 1953, „Fjallfoss“ 1796 lestir kemur ári síðar og loks „Selfoss" 2339 lestir 1958. Af þessari upptalningu má sjá, að vel hefur verið að því unnið að auka og endurnýja skipakost Eimskipa- félags Islands. Á þessum árum var „Lag- arfoss“ eldri og gamli „Selfoss" seldir til niðurrifs, en „Fjallfoss“ og „Brúarfoss“ seldir úr landi. Flest skip félagsins geta að meira eða minna leyti flutt frystan varning í lestum, og er það mjög mikil- vægt fyrir vaxandi freðfiskframleiðslu landsmanna. Árið 1928 kaupir nýstofnað félag, Eim- skipafélag Vestfjarða, eimskipið „Vestri“ 924 br. lestir og gerði það út þar til skip- ið var selt til Noregs til niðurrifs 1934. Heimilisfang skipsins var Flateyri. Eimskipafélag Reykjavíkur var stofnað 1932 og keypti frá Noregi gufuskip, sem hlaut nafnið „Hekla“ 1215 br. lestir og 1934 eignaðist féla.gið annað skip, sem hlaut nafnið „Katla“, 1209 br. lestir. I ófriðarbyrjun keypti h. f. Kveldúlfur „Heklu“, en hún var skotin í kaf í júlí 1941 á leið til Kanada. Katla var seld Eimskipafélaginu, sem þá hlaut nafnið „Reykjafoss“ 1948 lét félagið smíða nýtt flutningaskip í Svíþjóð, sem hlaut nafnið „Katla“ 1331 br. lest og 1957 lætur fé- lagið smíða 500 lesta flutningaskip,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.