Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1984, Page 12

Ægir - 01.08.1984, Page 12
Rannsóknastofan 1936. Á árunum 1929-1933 veitti félagið Þórði Þor- bjarnarsyni styrk til náms í fiskiðnaði o.fl. við Dal- housieháskólann í Halifax í Kanada. Og 1. jan. 1934 réð það hann til starfa og veitti honum starfs- aðstöðu. Og starfaði hann hér heima á sumrum en hélt áfram námi og rannsóknum á vetrum í Eng- landi þar til hann lauk doktorsprófi í London 1937. En með störfum Þórðar sem hefjast 1934 má segja að Rannsóknastofa Fiskifélagins sé stofnuð. Þegar á fyrstu árunum fór Þórður með nokkur sýni af lýsi til vítamínmælinga í Englandi. Með ráðningu Árna og Þórðar til félagsins verða tímamót í sögu þess og sögu íslenskra fiski- og fisk- iðnrannsókna. Það hafa verið víðsýnir menn við stjórvölinn í Fiskifélaginu á þessum árum, sem þjóðin stendur í þakkarskuld við. Árni og Þórður unnu þjóðinni ómetanlegt gagn eins og kunnugt er. Löggjöf um rannsóknir Árið 1929 voru sett lög um rannsóknir í þarfir atvinnuveganna. í þeim er sagt, að fyrirhuguð stofnun skuli m.a. rannsaka verkunarskemmdir í fiski. Þessi lög komu aldrei til framkvæmda og voru numin úr gildi með lögum nr 97 1935 um rannsókna- stofnun í þarfir atvinnuveganna við Háskóla íslands. Stofnunin skyldi starfa í 3 deildum: fiski- deild, landbúnaðardeild og iðnaðardeild. í ákvæðum um verksvið iðnaðardeildar var tekið fram að meðal verkefna hennar skyldu vera fjör'1 (vítamín) og fiskiðnaðarrannsóknir. Víst er ul11 það, að sumir vildu að sú starfemi sem hafin var Rannsóknastofu Fiskifélags íslands yrði flutt hinna nýju stofnunar, sem tók til starfa 1937 (2. 'j' Svo varð þó ekki, en Þórður var ráðinn til að star þar að slíkum rannsóknum í hlutastarfi og hélst þa fyrirkomulag til ársloka 1955 (7). Samkvæmt 108 unum frá 1935 var gert ráð fyrir því að starfsmeu'j rannsóknastofnunarinnar önnuðust kennslu v Háksóla íslands án sérstakrar borgunar og stofnu deild við Háskólann. Einhverjar viðræður fram við forráðamenn Háskólans, en ekkert varð framkvæmdum á þessu sviði (8). En ljóst er, að pe i stóðu að þessari lagasetningu hafa verið áhuga sem: Arið 1940 var lög' samir um eflingu háskólans. •- ^ unum breytt og þá fellt niður ákvæðið um verksvið iðnaðardeildar skyldi m.a. vera fiskiðm1 arrannsóknir og Rannsóknaráði ríkisins falin ý stjórn stofnunarinnar, Atvinnudeildar HáskólaiÞ- Það var farsæl lausn að fiskiðnrannsóknirI1‘ urðu áfram á vegum Fiskifélagsins sem jafnan he gætt hagsmuna sjávarútvegs og fiskiðnaðar. Enda áttu þær góða þróunarmöguleika, sem reyns a sýndi. Þess er hollt að minnast, að bæði Rannsókn^ stofa Fiskifélags íslands og Atvinnudeild Háskólu^ tóku til starfa á tímum kreppunnar miklu er n um 1930 og stóð fram að stríðsbyrjun. Þá v°^ óvenju miklir efnahagsörðugleikar í þjóðarbm Rannsóknastofa Fiskifélagsinsstarfaði í 31 ár^a ársins 1965, er sett voru lög um rannsóknir i P - atvinnuveganna og stofnuð Rannsóknasto fiskiðnaðarins, sem var ríkisstofnun, er tók störfum og eignum Rannsóknastofu Fiskifélagsl ^ Stjórn Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins . skipað 3 mönnum og er einn þeirra tilnefndnr Fiskifélagi íslands. Við stofnunina starfar og ‘ gjafarnefnd og á Fiskifélag íslands fulltrúa í lietl Dr. Þórður Þorbjarnarson gegndi starfi forstj0^ til ársins 1974 að hann lést. Sama ár var dr. o) Dagbjartsson skipaður forstjóri og gegnir hann F starfi enn. Árið 1961 var gerladeild Atvinnudei ^ Háskólans sameinuð Rannsóknastofu FiskiD - ins, sem upp frá því starfaði í tveimur dei|L • efnafræðideild og gerladeild. Gerladeildin haf ^ um nokkurra ára skeið haft afnot af húsnaeði, var að rísa að Skúlagötu 4 og ætlað var fiski- og ^ iðnaðarrannsóknum. Á árinu 1974 tók svo tilsta 396-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.