Ægir - 01.08.1984, Blaðsíða 44
Haldið var áfram tilraunum með niðursuðu á krækl-
ingi og kúffiski. Ekki hafði tekist að fá kúffiskinn
svo mjúkan, að sambærilegt væri við skyldar teg-
undir erlendar. Ýmiss konar rannsóknir voru
gerðar á öflun kræklings (1969) og kúffisks á mis-
munandi árstímum (1967, 1968). Árið 1970 voru
gerðar tilraunir með kavíar, kryddsíldarpöstu, grá-
lúðu og marineraða síld. Eins og kunnugt er hófst
upp úr því að þessar lagmetistilraunir byrjuðu um
1960, framleiðsla á niðursoðinni lifur, sem haldist
hefur að mestu síðan og mun nú vera að aukast.
Auk þess var eitthvað framleitt og flutt út af þorsk-
lifrarpöstu. 1971 voru framkvæmdar tilraunir með
framleiðslu á þorskhrognakavíar og kaldreyktum
lausfrystum hörpudiski er pakkaður var í loftdregna
plastpoka. Þá var og gerð úttekt á nýtingu grásleppu
(1971). Árið 1972 var þeim athugunum haldið
áfram, en einnig gerðar tilraunir með að sjóða niður
þorskgellur og kinnar og að framleiða reyktan og
óreyktan þorskhrognakavíar. Úttekt á nýtingu kúf-
skeljar var og gerð 1972. Á vegum Sölustofnunar
lagmetis voru prófaðar 20 tegundir fiskrétta, sem
framleiddar voru í íslenskum lagmetisverksmiðjum
samkvæmt erlendum forskriftum. Þá var og rann-
sakað svonefnt F-gildi niðursuðuvara (1975).
Einnig var rannsakað, hve lengi ísuð þorsklifur væri
nothæf til niðursuðu. Var sendur maður í róður og
ísaði hann nokkurt magn af lifur í kassa um leið og
slægt var, Lifrin var síðan geymd þannig við 0°C og
reyndist nothæf í viku og vel það. Rannsóknum í
sambandi við vöruþróun í lagmeti var haldið áfram
á næstu árum, einnig rannsóknum á næringar- og
rotvarnarefnum í lagmeti, auk þess að þróa mats-
reglur fyrir lagmeti o.fl. (1977,1978, 1979,1980).
Nýting kolmunna
Ein er sú fisktegund, sem menn hafa gert sér
miklar vonir um að nýta mætti í verulegu magni til
manneldis og mjöl- og lýsisframleiðslu s.l. 15 ár, en
það er kolmunni. En því miður hafa þær vonir
brugðist enn að mestu leyti eins og kunnugt er. Víð-
tækar rannsóknir fóru fram á nýtingu kolmunnans í
Rannsóknastofnuninni og m.a. í samvinnu við Fær-
eyinga, Norðmenn og Dani og Svía að nokkru leyti,
á vegum Nordforsk. Kolmunni geymist tiltölulega
illa. Gerð var tilraun með geymslu á kolmunna til
bræðslu með ís, formalíni, blöndu af nítriti og form-
alíni og ís og formalíni og ís og nítriti. Áberandi var
að kviðurinn var heillegastur á þeim kolmunna, sem
geymdur var ísaður. Sú geymsluaðferð myndi og
ein koma til greina við geymslu á kolmunna til
manneldis. Tilraunin fór fram í júnímánuði og var
kolmunninn svipaður átufullri síld að því leyti að
kviðskemmdir vegna starfsemi meltingarvökvanna
takmarka mjög geymsluþol hans (1972). Þá vorn
gerðar tilraunir með framleiðslu marnings úr haus-
uðum og slægðum kolmunna. Marningurinn reynd'
ist nokkuð dökkur og útlitsljótur vegna himnuleifa-
hryggblóðs og roðtægja. Reynt var að bæta útlitÚ
með því að þvo hann með vatni, blönduðu bleikt'
efnum. Notað var vetnisperoxíð í 0.1% edikssýru
og lýstist marningurinn mikið og batnaði í útliti-
Sýni af óbleiktum og bleiktum marningi í blokkum
voru send Coldwater Seafood Corp. í BandaríkJ'
unum til umsagnar (1973). Þá voru og framleidd
sýni af söltuðum og þurrkuðum kolmunna og kol'
munnaskreið og komið á framfæri við viðeigaud'
sölusamtök (1974). Á næsta ári var svo gerð enn
stærri tilraun með vélvinnslu á kolmunna. Ham1
kom ísaður í kassa og geymdist þannig a.m.k. 6sól'
arhringa, en spærlingur sem einnig var rannsakaðuf
um leið var orðinn lélegt hráefni eftir 4 sólarhringa-
Tilraunirnar voru gerðar í samvinnu við Meitiliu0
h.f. í Þorlákshöfn. Kolmunninn varýmist hausaðut
og slógdreginn, kviðhreinsaður eða flakaður. VéÞ
vinnsla kolmunnans með vélasamstæðu CIS/Co
frá Arenco gekk sæmilega eftir nokkra byrjunat'
erfiðleika. Betri nýting fékkst bæði við aðgerð og
marningsvinnslu en Norðmenn og Bretar höfðu
náð. Hausaður og slógdreginn var kolmunnin’1
aðallega skreiðarþurrkaðqr í saltfiskþurrkara. Úm
200 kg af skreið úr 1.5 tonnum af kolmunna v°rl1
send til Nígeríu til markaðsathugana á vegum San1
lags skreiðarframleiðenda. Marningur úr flökum
kviðhreinsuðum fiski, lítilsháttar af kolmunnu
flökum og kviðhreinsuðum kolmunna og spærliu?1
voru fryst og afhent sölusamtökum frystiiðnaðaru1'
til prófana og markaðsleitar. Gerðar voru kostna(
aráætlanir fyrir framleiðslu á marningi og skrei
Ljóst var. að vinnsla manneldisafurða úr smáfisk
tegundum yrði mun kostnaðarmeiri en ef unninn
þorskur eða annar stærri fiskur (1975). Árið eft,r
var svo kolmunni unninn í skreið og marning
fjórum stöðum á landinu. Þá voru gerðar áætlan>r
um breytt fyrirkomulag við vinnsluna og arðserm1'
athugun. Ennfremur voru gerðar athuganir
428-ÆGIR