Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1984, Page 50

Ægir - 01.08.1984, Page 50
sóknastofunnar kom heim úr ferð til Bandaríkjanna árið 1944 og skrifaði grein um það o.fl. í Ægi (21). Þó að þessar upplýsingar væru vel kynntar forráða- mönnum síldarverksmiðjanna var lítið aðhafst fyrr en 1953, enda brást síldveiði norðanlands að miklu leyti 1945. Árin 1946 og 1947 þóttu heldur slök síld- arár og eftir það var síldveiði mjög lítil þar til síld fór að veiðast fyrir austan og norðaustan land upp úr 1960. En það er af soðnýtingu að segja, að árið 1953 hafði Lýsi og Mjöl h.f. í Hafnarfirði aflað sér soð- eimingartækja að ráði forstöðumanns Rannsókna- stofunnar og hóf nýtingu á soði. Var einkum um karfa að ræða. Skömmu síðar hófu Síldar- og fisk- mjölsverksmiðjan hf. í Reykjavík og Síldarverk- smiðjan á Akranesi soðnýtingu. Rannsóknastofan veitti sérstaklega fyrrnefndu verksmiðjunni aðstoð við soðnýtinguna. Norðanlands hófst soðnýting í Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði 1957 og ári síðar á Raufarhöfn, en almennt var síldarsoðið ekki nýtt norðanlands og austan fyrr en upp úr 1960 (22). Allar stærri loðnuverksmiðjurnar, sem nú eru starf- andi munu búnar eimurum til soðnýtingar, en hinar minni nýta soðið eftir því sem þær geta með því að þurrka það með pressukökum. Það mun hafa verið í lok fimmta áratugarins eða byrjun þess sjötta að fréttir bárust frá Noregi um nýtingu á soði með því að þurrka það með pressu- köku í tveimur þurrkurum. Rannsóknastofan aðstoðaði nokkrar verksmiðjur við að nýta soðið á þennan hátt. Var meðal annars gerð tilraun með þetta í Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði með aðstoð Rannsóknastofunnar áður en eimarar voru teknir þar í notkun. Eins og ráða má af þeim tölum sem áður voru til- greindar um efnatöpin í soðinu, þ.e. ca 4716 kg af fitufríu þurrefni úr hverju tonni síldar, sést að með því að nýta soðið koma mjög mikil verðmæti til skila í mjölinu. Það mun láta nærri að í mörgum tilvikum hafi mjölmagn aukist um 30%. Þess má til fróðleiks geta, að í merkri handbók um norskan fiskiðnað, sem kom út um 1950, er ekki getið um annað en að soðinu sé fleygt (23). Loðnubræðsla Upphaf loðnubræðslu hér á landi er það að árið 1958 fékk forstöðumaður Rannsóknastofunnar þrjá kunna athafnamenn, sem höfðu yfir bátum °? síldarverksmiðjum að ráða, í lið með sér til þessa freista þess að veiða loðnu til bræðslu. Vissu þeira Norðmenn veiddu loðnu í vaxandi mæli til bræðslm Þeir snéru sér til sjávarútvegsráðuneytisins me beiðni um fjárhagsstuðning við þetta fyrirtæk'- Ráðuneytið brást vel við og fyrir milligöngu þesS veitti Fiskimálasjóður styrk til þess að gera tilrarrö með að veiða og vinna í síldarverksmiðjum alh a 1000 tonnum af loðnu undir stjórn forstöðumaI1IlS Rannsóknastofunnar (24). Þessar tilraunir fóru s' ° fram í mars og apríl sama ár. Auðvelt reyndist að geyma loðnuna rotvafða með nítriti og var talið sýnt að geyma mætti han‘* mánuðum saman rotvarða. Blóðvatnsmyndul1 reyndist miklu meiri en við geymslu á síld. Virtist nauðsynlegt að geyma loðnuna í þéttum þróm e^u geymum og hagnýta allt blóðvatn. Það kom í ljós a nauðsynlegt þótti að láta loðnuna brjóta sig áðut'-'1 hún er unnin til þess að hún pressist sæmilega. Vinnsla loðnunnar gekk vandræðalítið. Hins vegar varð afurðamagnið tiltölulega lítið þar ekki var hægt að nýta blóðvatnið. Þó að þessi fyrsta tilraun gengi eftir atvikui1 sæmilega varð nokkur bið á að farið væri að veið*1 loðnu til bræðslu. Það var raunverulega ekki fyrre 1965 að teljandi magn af loðnu væri unnið í mjöl lýsi. Árið 1963 voru unnin rúmlega 1000 tonn árið eftir 8640 tonn, en 1965 49610 tonn (25). Eins og áður er getið stóð Rannsóknastofnuu111 fyrir margs konar rannsóknum á geymslu rot'ar innar loðnu. Aðferðin til rotvarnar kom að ómetan legu gagni og má segja að ógerningur hefði veriö a nýta loðnuna til bræðslu í þeim mæli, er raun varö 3 ef þeirrar aðferðar hefði ekki notið við. Ýmiss konar rannsóknir voru gerðar á nýtinuU blóðvatns og soðs í verksmiðjunum, á notaguu mjölskilvinda o.fl. Fiskafóðursrannsóknir _ Á árunum 1965-1966 var fyrst farið að huga a framleiðslu fiskafóðurs og aflað tækja í því s‘llT^ bandi. Tveimur aðilum var þá veitt nokkur aðst° við slíka framleiðslu. Árið 1969 var svo hafin sa vinna við Veiðimálastofnun um fóðurtilraunir a ‘ og bleikju með fóðri úr íslenskum hráefnum- 434-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.