Ægir - 01.08.1984, Qupperneq 54
sem viðbót með fóðrinu þyngjast meira en saman-
burðarhóparnir. Ærnar sem fengu meltu virtust
hraustari en þær sem enga meltu fengu (1979). Á
því ári var einnig safnað um 7001 af slógi um borð í
togara og það blandað 3% maurasýru með hring-
dælingu. Þegar í land kom var reynt að skilja lýsið
úr meltunni með sérstakri skilvindu (dekanter) en
mistókst, en mjög gott lýsi náðist með fleytingu.
Næsta ár var þessum tilraunum haldið áfram og
safnað 9 tonnum af slógi í togara og það sýrt jafn-
óðum og það féll til með maurasýru með hringdæl-
ingu. í þetta skipti skildi slógið sig ekki, þannig að
ekki náðist neitt lýsi, en meltan var unnin í lýsi og
mjöl í fiskmjölsverksmiðju (1980). Á næsta ári var
hannaður búnaður fyrir nokkra aðila til framleiðslu
á meltum bæði í landi og í togurum. Notkun á
meltum hefur aukist (1981). Síðan var haldið áfram
könnun á heppilegum búnaði og tækni við melt-
uvinnslu. Var þá hvert þrep meltuvinnslunnar tekið
fyrir sérstaklega og þýðing þess fyrir meltuvinnsl-
una rannsökuð. Gerðir voru ítarlegir hagkvæmnis-
útreikningar fyrir meltuvinnslu hjá einum fiskverk-
anda og sýndu þeir að meltuvinnslan skilaði viðun-
andi arði (1982). Ennfremur voru kannaðir allir
helstu grundvallarþættir meltuvinnslu um borð í
skuttogara en þar skiptir mestu að hráefni er ferskt,
sýrustig þarf að vera rétt, blöndun góð, gott flutn-
ingskerfi og geymsluílát góð. Talið var að á skuttog-
ara falli til um 800-1100 tonn af meltuhráefni á ári.
Það er því eftir miklu að slægjast ef tekst að nýta
þetta hráefni (1982). Á næsta ári var athuguð verð-
mætasköpun við meltuvinnslu og sýndi það sig að
nýting lýsis er meginhluti nýtingarinnar. Sett var
meltuvinnslukerfi í einn togara. Haldið var áfram
rannsóknum á fóðurgildi meltunnar. Meltan var
notuð með mysu til eldis kálfa. Þá voru gcrðar til-
raunir með að blanda meltu í grasmjöl og gekk það
vel og er verið að athuga geymsluþol fóðurblandna,
er framleiddar voru úr meltu og/eða mysu og gras-
mjöli. Þessar rannsóknir hafa verið gerðar í sam-
vinnu við Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Landgræðslu ríkisins, Fóður og fræ o.fl. (1982).
Nokkur önnur verkefni
Af öðrum rannsóknaverkefnum o.fl. sem ekki
verða rakin hér má nefna nýtingu á lýsi en um það
mál er til rækileg skýrsla (52), framleiðslu á
humarkrafti, en þróuð var aðferð til framleiðslu á
honum, margs konar vélaprófanir, rannsóknir a
umbúðum um saltsíld, rannsóknir á skelfiskeitn-
leifum skordýraeiturs í fiskafurðum, nýtingu ha
karls og háfategunda, gulllaxi o.fl. Ýmiss konar
rannsóknir á marningi, nýting á ýmsum skeldýru'11
og krabbategundum. framleiðslu á fiskkrafti, sen1
nú er unnið að, margs konar rannsóknir í samban
við fiskmjölsframleiðslu. mengun unthverfis
sjávar, rannsóknir á efnasamsetningu t.d. steinblts
og hlýra og fleiri fisktegunda o.fl.
Margs konar námskeið hafa verið haldin, ra
stefnur um vandamál fiskmjölsiðnaðarins o.fl-
Á síðari árum hefur samvinna við Háskóla
íslands aukist og hafa allmargir stúdentar unnið a
rannsóknunt. sem prófverkefnum, allmargir ha
unnið að lokaprófsverkefnum í vélaverkfræð1 1
samvinnu við tæknikdeildina. Má þar t.d. neh1*1
verkefni um notkun jarðgufu í fiskmjölsverksrnið.l11
en ein slík verksmiðja hefur nú tekið til starfa- Á’11
þetta allt og margt fleira má lesa í ársskýrslum stot'1
unarinnar, Tæknitíðindum, en af þeim eru llU
komin út yfir 150, RIT-um sem einkum fjalla utl1
meiri háttar vísindaleg verkefni. Ársskýrslur stota
ananna hafa verið gefnar út sérprentaðar 1937-1 ’
og frá 1965, en hin árin eru skýrslur um starfsem111,1
í ársskýrslum Fiskifélags íslands. Auk þessa heft*r
einkum fyrr á árum verið gefinn út mikill fjöld1 tj
ritaðra skýrslna. í Tæknitíðindum nr 76, 1976 ^
skrá um ritstörf starfsmanna stofnananna frá 1
1975.
Lokaorð
í þessari samantekt um starfsemi Rannsóknasto*
unnar og Rannsóknastofnunarinnar um há 1 fr‘'
aldar skeið hefir verið greint frá nokkrum viða^
mestu rannsóknaverkefnunum. Sú leið var valiu a
skýra sem rækilegast frá þeim verkefnum sem va líl
voru.
Rannsóknastofa Fiskifélags íslands og Raf|11
sóknastofnun fiskiðnaðrarins hafa átt mjög gott °r
náið samstarf við fjölda aðila í sjávarútvegi ogtlS ^
iðnaði um ntörg þau verkefni sem rakin hafa veö
cinh'
oft
og getið er. Á síðustu árunt hcfur samvinnan
um verið mikil við sölusamtökin og hafa þau
veitt ómetanlegan stuðning. ...
Höfundur þakkar samstarfsmönnum, sem tLS^.
hafa yfir kafla þessarar samantektar sem vona'1
verður til nokkurs fróðleiks um mikilvægan Þatt
þróun sjávarútvegs og fiskiðnaðar.
438-ÆGIR