Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Blaðsíða 8
MAGNÚS THORLACIUS
Magnús Thorlacius hæstaréttarlögmaSur
andaðist í Reykjavík 28. desember 1978.
Hann var fæddur að Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd 19. nóvember 1905, sonur prestsins
þar, Einars prófasts Thorlacius Þorsteinssonar
Einarssonar Thorlacius á Öxnafelli. Kona séra
Einars og móðir Magnúsar var Jóhanna Aðal-
björg Benjamínsdóttir Jónssonar á Stekkjaflöt-
um í Eyjafirði. Stóðu þannig að Magnúsi sterkar
eyfirskar ættir. Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík vorið 1924 og lauk lög-
fræðiprófi í júní 1929, hvort tveggja með góðri
1. einkunn. Þá um haustið opnaði hann mál-
flutningsskrifstofu í Reykjavík og rak hana til
dauðadags. Hann varð hæstaréttarlögmaður í
febrúar 1942.
Magnús varð í æsku fyrir miklum heilsufarslegum áföllum, sem mörgum
hefði dugað til aldurtila, en Magnús sigraði. Þetta varð hins vegar þess vald-
andi, að hann náði ekki þeirri líkamlegu reisn, sem hann var borinn til. En
hann lét aldrei deigan síga, og andlegri reisn sinni hélt hann til æviloka, enda
duldist engum, að þar sem Magnús var, þar fór kynborinn maður.
Ekki er vafi á, að sjúkdómsraunir æskuáranna hafa haft djúpstæð áhrif á
skapgerð Magnúsar og gjört hann að þeim mikla baráttumanni, sem hann
síðar reyndist í starfi, manni sem hélt fast á sínum málstað og ógjarnan lét
hlut sinn fyrir öðrum. Þessi eigind hans aflaði honum trausts og virðingar
bæði viðskiptamanna hans og stéttarbræðra, sem kjöru hann formann síns
stéttarfélags um margra ára skeið.
Magnús var fagurkeri, unnandi góðra bókmennta og lista almennt og þá
sérstaklega góðrar tónlistar. Utan starfsins var hann ræðinn og margfróður,
stilltur vel, en gat verið hóflega gamansamur. Hann var talinn góður mála-
maður og lagði sérstaka rækt við móðurmálið, jafnt í riti og f ræðustól. En
einnig lagði hann mikla stund á franska tungu og varð löggiltur túlkur og
skjalaþýðandi á því máli. Af þeim sökum hlaut hann 1955 Médaille des Affaires
étrangéres frá hinu franska ríki.
Hinn 8. júní 1957 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Jóhönnu Fossberg,
dóttur Gunnlaugs kaupmanns Fossbergs af skaftfellskum ættum, og konu
hans, Jóhönnu, dóttur Bjarna Thorarensen skipstjóra og síðar hafnsögumanns
í Stykkishólmi. Þau eignuðust 3 börn, Einar Örn, Jóhönnu Margréti og Önnu
Rögnu. Sonurinn stundar nú laganám og býr sig þannig undir að feta í fót-
spor föður síns.
Magnús var í makavali sínu mikill lánsmaður. Þau tímamót urðu honum
líkt og þegar vel vorar eftir harðan vetur.
Blessuð sé minning góðs vinar.
Ólafur Þorgrímsson.
178