Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Blaðsíða 29

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Blaðsíða 29
ekki undir félagsdóm og ber því að vísa því frá dómi“. 1 fljótu bragði gæti virst svo, sem í þessu máli væri um hliðstæða hluti að ræða og áttu sér stað í sambandi við útflutnings- og olíu- bannið síðastliðið vor. Við nánari athugun kemur þó í ljós, að svo er ekki. Yfirskrift yfir dómnum er: „Mál út af kæru um ólögmætt sam- úðarverkfall“. 1 forsendum félagsdóms er margtekið fram, að um af- greiðslubann forráðamanna Dagsbrúnar á hendur stefnanda hafi verið að ræða. Fer ekki á milli mála, að hér hefur verið um samúðaraðgerðir að ræða. I þeim dómum félagsdóms, sem hér hafa verið raktir, kemur fram, að þær samúðaraðgerðir, sem dómarnir fjalla um, hvort sem þær að- gerðir eru kallaðar afgreiðslubann eða samúðarverkfall, falla undir II. kafla laga nr. 80/1938; að ákvörðun um slíkar aðgerðir þurfi að taka í samræmi við lögin um stéttarfélög og vinnudeilur; og að tilkynn- ingar þurfi að gefa út í samræmi við 16. grein laganna. Af þessum dómum má einnig draga þá ályktun, að stéttarfélagi sé heimilt að stöðva vinnu hjá tilteknum aðila, sem á í verkfallsdeilu við annað verkalýðsfélag, þó að félagsmenn verkalýðsfélagsins, sem beitir sam- úðaraðgerðunum, séu að öðru leyti í fullri vinnu og leggi ekki niður vinnu. Mér sýnist það leiða af eðli málsins að gera verði skarpan greinarmun á verkföllum og samúðaraðgerðum, þótt ákvörðun um hvoru tveggja þurfi að taka samkvæmt 2. kafla laga um stéttarfélög og vinnudeilur, og tilkynningar þurfi að fara með samkv. 16. grein lag- anna. Samúðaraðgerðir má aðeins gera til styrktar löglegu verkfalli, slíkar aðgerðir beinast að aðila, sem verkfall er hjá. Þegar verkalýðs- félag styður annað félag, sem á í launadeilu, með því að láta meðlimi sína stöðva afgreiðslu á t.d. vörum til vinnuveitanda, sem verkfall er hjá, sýnist mér ljóst, að slíku ástandi verði á engan hátt jafnað við það, ef hvergi er um verkfall að ræða, og verkalýðsfélag fyrirskipar meðlimum sínum að vinna aðeins að tilteknum verkum, svo sem í út- flutnings- og olíubanninu s.l. vor. Slíkar aðgerðir geta ekki talist lög- legt verkfall. Niðurstaða af þessu spjalli mínu er því, að eitt af skilyrðum, sem þurfa að vera fyrir hendi, til þess að verkfall sé löglegt, er að hópur manna leggi niður vinnu, og er þá átt við alla vinnu. Þessu megi hins- vegar ekki blanda saman við samúðaraðgerðir. Verkalýðsfélag, sem samþykkir samúðaraðgerðir (afgreiðslubann eða samúðarverkfall) til stuðnings öðru verkalýðsfélagi, sem er í verkfalli, beinir þessum að- gerðuni að vinnuveitanda, sem annað félag á í deilu við. Það heldur hinsvegar uppi fullri vinnu fyrir þá vinnuveitendur, sem ekki eru að- 199

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.