Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Qupperneq 21

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Qupperneq 21
fram nokkur atriði, sem gera verkfall eða vinnustöðvun óheimila. Er þar t.d. um að ræða ágreining um atriði, sem félagsdómur á úrskurð- arvald um, nema til fullnægingar úrskurðum félagsdóms. Þá er það ólögmæt vinnustöðvun, ef tilgangur hennar er að þvinga stjórnvöld til að framkvæma athafnir, sem þeim lögum samkvæmt ekki ber að framkvæma, eða framkvæma ekki athafnir, sem þeim lögum samkv. er skylt að framkvæma, enda sé ekki um að ræða athafnir, þar sem stjórnvöld eru aðili sem atvinnurekandi. Ef stjórnvöld eru atvinnu- rekendur, er að sjálfsögðu stéttarfélagi heimilt að gera verkföll til að ná fram kröfum um kaup og kjör gagnvart stjórnvaldinu sem vinnu- veitanda. Ég hef talað hér um verkfall sem þekkt fyrirbæri, enda mun það vera svo. Þó er ástæða til að athuga nánar, hvað felst í verkfalli, — hvað í raun og veru er verkfall. Ég tel, að skilgreining á verkfalli hljóti að vera sú, að verkfall sé það, þegar meðlimir ákveðins stéttarfélags leggja niður vinnu samkv. fyrirfram ákveðnu skipulagi. Samkvæmt þessu lít ég svo á, að til þess að um löglegt verkfall geti verið að ræða, verði menn, sem að því standa, að leggja algjörlega niður vinnu. Það breytir ekki þessu, þó að einstakir verkamenn haldi áfram vinnu til þess að bjarga verðmætum frá eyðileggingu, eins og oft er gert í vinnudeilum. Hinsvegar tel ég, að það sé ekki verkfall í skilningi þess- ara laga, ef verkamenn eða starfsmenn stéttarfélags mæta til vinnu og vinna ýmis störf, en neita að vinna önnur. Það get ég með engu móti fellt undir hugtakið vinnustöðvun eða verkfall. Ég held, að þessi skýring, sem hér hefur verið fram sett, sé algjörlega í samræmi við Vilhjálmur Jónsson lauk lagaprófi 1947. Sama ár hóf hann störf hjá Sambandi íslenskra sam- vinnufélaga og var þar við lögfræðistörf, svo og hjá Samvinnutryggingum og kaupfélögum víða um land, til ársins 1959. Á því ári var hann ráð- inn forstjóri Olíufélagsins h/f og Hins íslenska steinolíuhlutafélags, og hefur hann gegnt þeim störfum síðan. — Hér er birt grein, sem byggð er á erindi, er Vilhjálmur flutti 30. september s.l. á málþingi lögfræðingafélagsins um vinnulög- gjöfina og verkföll. Gerir hann þar grein fyrir skoðunum sínum á því, hvar séu mörk lögmætra og ólögmætra verkfallsaðgerða, en það er sama efni og um er rætt í erindi Arnmundar Back- man hdl. á öðrum stað í þessu hefti. 191

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.