Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Page 43
Ávíð
oíí dreif
NÝ STJÓRNARSKRÁRNEFND
Hinn 6. maí s.l. samþykkti Alþingi svohljóðandi þingsályktun:
„Alþingi ályktar, að þar sem 6 ár eru liðin síðan stjórnarskrárnefnd var
kosin, og það er lengri tími en venjulegur kjörtími þingkjörinna nefnda og
ráða, skuli að loknum kosningum til Alþingis tilnefna að nýju 9 menn [ stjórn-
arskrárnefnd af hálfu þeirra stjórnmálaflokka, sem fulltrúa eiga á nýkjörnu
Alþingi, og í hlutfalli við þingmannatölu þeirra. Skal hin nýja nefnd skila innan
tveggja ára álitsgerð og tillögum um endurskoðun stjórnarskrárinnar og taka
sérstaklega til meðferðar kjördæmaskipun, kosningaákvæði stjórnskipunar-
laga, skipulag og starfshætti Alþingis og kosningalög."
Forsætisráðuneytið gaf út svohljóðandi fréttatiIkynningu 27. nóvember s.l.:
„Skipuð hefur verið ný stjórnarskrárnefnd samkvæmt ályktun Alþingis frá
6. maí s.l. Kvað ályktunin á um að tilnefningu níu manna í nefndina af hálfu
stjórnmálaflokka sem sæti hlytu á nýkjörnu Alþingi í hlutfalli við þingmanna-
tölu flokkanna.
Alþýðubandalagið tilnefndi Ftagnar Arnalds ráðherra og Ólaf Ragnar Gríms-
son alþingismann en til vara alþingismennina Lúðvík Jósepsson og Gils Guð-
mundsson. Alþýðuflokkurinn tilnefndi Gylfa Þ. Gíslason prófessor og Jón
Baldvin Hannibalsson skólameistara. Framsóknarflokkurinn tilnefndi Þórarin
Þórarinsson ritstjóra og Sigurð Gizurarson sýslumann. Sjálfstæðisflokkurinn
tilnefndi alþingismennina Gunnar Thoroddsen og Matthías Bjarnason og
Tómas Tómasson sparisjóðsstjóra.
Samkvæmt ályktun Alþingis ber nefndinni að skila álitsgerð og tillögum
um endurskoðun stjórnarskrárinnar innan tveggja ára. Hún skal taka sérstak-
lega til meðferðar kjördæmaskipun, kosningaákvæði stjórnskipunarlaga, skipu-
lag og starfshætti Alþingis og kosningalög.
Forsætisráðherra hefur kallað stjórnarskrárnefnd til fyrsta fundar 1. desem-
ber n.k. Nefndin mun sjálf kjósa sér formann."
Nefndin hefur nú tekið til starfa. Dr. Gunnar Thoroddsen fyrrv. ráðherra var
kjörinn formaður nefndarinnar. Ritari hennar er Guðmundur Benediktsson
ráðuneytisstjóri, en ráðunautur dr. Gunnar G. Schram prófessor.
213