Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Qupperneq 44
Frá
Lagadeild
SKÝRSLA UM LAGASTOFNUN HÁSKÓLAÍSLANDS
28. febrúar 1977 — 27. febrúar 1978
STARFSLIÐ:
Þessir kennarar í fullu starfi störfuðu við Lagastofnun 1977: Arnljótur Björns-
son, Gaukur Jörundsson, Gunnar G. Schram, Jónatan Þórmundsson, Lúðvík
Ingvarsson, Páll Sigurðsson, Sigurður Líndal og Stefán Már Stefánsson.
STJÓRN:
Á fundi lagadeildar 23. nóvember 1976 voru þessir menn kosnir í stjórn
stofnunarinnar: Gaukur Jörundsson, Jónatan Þórmundsson, Lúðvík Ingvarsson
og Sigurður Líndal. Stjórn Orators, félags laganema, hefur tilnefnt Valgeir Páls-
son stud. jur. í stjórnina. Sigurður Lindal hefur gegnt starfi forstöðumanns frá
23. febrúar 1977. Stjórnin hélt einn fund á tímabilinu 28. febrúar 1977 — 27.
febrúar 1978. Ársfundur var haldinn 27. febrúar 1978.
RANNSÓKNIR 1977:
Rannsóknar- og ritstörf kennara í fullu starfi við lagadeild, sem teljast starfa
við Lagastofnun Háskóla Islands voru sem hér segir:
Arnljótur Björnsson: Ritstörf: Dómar um bótaábyrgð hins opinbera 1920—
1976. Rvík 1977. 72 bls. (offset-fjölritað). Almenn skaðabótalög á Norðurlönd-
um. Tímarit lögfraeðinga 4. hefti 1977 (í prentun). Yfirlit yfir bótakerfi á ilslandi.
18 bls. (fjölritað námsefni í skaðabótarétti). Fáein atriði varðandi skaðabóta-
ábyrgð hins opinbera. 11 bls. (fjölritað námsefni, sem notað er í skaðabóta-
rétti og stjórnarfarsrétti). Evrópuráðstefna lagadeilda 1976. Tímarit lögfræð-
inga 1976, bls. 184—188. Skaðabótaskylda tannlækna. Erindi flutt á fundi Tann-
læknafélags íslands 20. jan. 1977. Árbók Tannlæknafél. Tsl. 1976, bls. 57—65.
Fyrirlestrar: Bótakerfi og réttur til tjónbóta. Fluttur í Ríkisútvarpið 27. febrúar
1977. Almenn skaðabótalög á Norðurlöndum. Fluttur á málþingi Lögfræðinga-
félags íslands 8. október 1977. Skaðabótaábyrgð á vinnuslysum, sem hljótast
af athöfnum sjálfstæðra verktaka eða af bilun eða galla í tæki. Fluttur á málþingi
Lögfræðingafélags Islands 8. október 1977.
Gaukur Jörundsson: Hefur á árinu fengist við athuganir á sviði eignarréttar
vegna kennslurits, sem í undirbúningi er.
Guðrún Erlendsdóttir: Ritstörf: Óvígð sambúð. Úlfljótur 1. tbl. 1977. Könnun
á setu í óskiptu búi. (Ólokið).
214