Tímarit lögfræðinga - 01.12.1978, Side 45
Fyrirlestrar: Lovgivning mod könsdiskrimination og for tiltak som fremmer
ligestilling. Fluttur sem framsöguerindi á ráðstefnu um jafnréttismál í Finn-
landi í júni 1977.
Gunnar G. Schram: Ritstörf: Um málfrelsi alþingismanna. Úlfljótur 1977,
2. tbl. Um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Tímarit lögfræðinga, 27. árg., 2.
hefti. Sérprentun sömu ritgerðar, ásamt ýmsum fylgiskjölum, Örn og Örlygur,
Reykjavík 1977. Common Laws for Earth and Mankind. Keynote Paper. Second
International Conference on Environmental Future, Reykjavík, júní 1977. (Með
Prof. Gary L. Widman). Birtist í „Proceedings of the Conference." London 1978.
C. A. Fleischer, Fiskerigrensen, Folkeretten og den Ökonomiske Sone. Tids-
skrift for Rettsvitenskap, 1. hefti 1978. (Ritdómur).
Ennfremur unnið að eftirtöldum verkefnum: Könnun á norrænni löggjöf um
umhverfismál og umhverfisrétti nokkurra annarra landa, m.a. vegna aðildar
að samningu lagafrumvarps og greinagerðar um umhverfismál hér á landi.
Könnun á ýmsum efnisþáttum í stjórnskipunarrétti, einkum með tilliti til laga-
setningar á því sviði síðustu tvo áratugina. Unnið að annarri útgáfu ritsins
„Stjórnskipun íslands" eftir Ólaf Jóhannesson, sem út kom 1978. Unnið að
gerð kennslurits við lagadeild um þjóðarétt.
Fyrirlestrar: Stjórnlögin og þjóðin. Fluttur [ Ríkisútvarpið 24. apríl og 8. maí
1977. The Law of the Sea Policy of lceland. Fluttur á NUU Security Seminar.
Reykjavík, maí 1977. Iceland and the Law of the Sea. Fluttur á ráðstefnu
Atlantic Association of Young Political Leaders í Reykjavík í ágúst 1977.
Jónatan Þórmundsson: Ritstörf: Ideologier og realitter i islansk kriminal-
politik, erindi og þáttur í umræðum, Straffesystemer i Norden, NU B 1977: 25,
bls. 71—72, 84 og 131—134. Samanburður á afbrotahneigð karla og kvenna,
grein í Úlfljóti, 3.—4. hefti 1977. Heftið er rétt ókomið út, þegar þetta er ritað.
Kennsluáætlun í refsirétti, 3. útg. aukin og endurbætt (60 bls.). Ritið er síð-
búið og kemur ekki út í heild fyrr en í mars á þessu ári. Refsivist, fjölritað
hefti (36 bls.). Birtist í Tímariti lögfræðinga síðar á þessu ári. Rangur fram-
burður, rangar skýrslur og rangar sakargiftir, fjölritað hefti (21 bls.). Birtist
með nokkrum viðbótum í Úlfljóti síðar á þessu ári. Fyrirlestrar í skattarétti,
fjölritaðir inngangskaflar um nokkur undirstöðuatriði skattaréttar (34 bls.),
gefnir út aftur nokkuð endurbættir. Réttarstaða sakbornings, fjölritaður fyrir-
lestur (15 bls.).
Auk áðurgetinna ritsmíða var unnið að eftirtöldum verkefnum: Auðgunar-
brot og nokkur skyld brot, síðara hefti, var eitt helsta viðfangsefni á þessu
tímabili. Ritið, sem verður um 100 bls. að stærð, er væntanlegt fjölritað á þessu
ári. Opinbert réttarfar. Unnið var að endurskoðun 1. heftis, er kom út 1972.
Jafnframt var unnið að samningu 2. heftis. Bæði heftin eru væntanleg á fyrri
helmingi árs 1978. Einnig var unnið að tveimur álitsgerðum á þessu sviði.
Fyrirlestrar í skattarétti. Unnið var áfram að könnun nokkurra þátta í skatta-
rétti, m.a. vegna álitsgerða. Alþjóðasamningar. Unnið var að allítarlegri könn-
un á samningum Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og pólitísk réttindi og
um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og ákvæði þeirra borin
saman við íslenskar réttarreglur. Athugun þessi var gerð fyrir utanríkisráðu-
neytið.
Fyrirlestrar: Samanburður á afbrotahneigð karla og kvenna, sunnudags-
erindi í útvarpi 30. janúar 1977. Rangur framburður, fyrirlestur á fundi Lög<-
215