Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Side 10

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Side 10
„ . .. under a contract of service, a man is employed as part of the business, and his work is done as an integral part of the business; whereas under a contract for services, his work, although done for the business, is not intégrated into it but is only accessory to it.“15 Lík viðhorf koma fram hjá Jan Hellner, er hann segir, að út frá réttarpólitískum sjónarmiðum skuli sá bera vinnuveitandaábyrgð, sem notar annan til að vinna á sinn kostnað þannig að þeir báðir koma fram sem einn aðili út á við og sá fyrrnefndi einn eigi kost á að kaupa ábyrgðartryggingu vegna þessarar starfsemi.1'1 Þessi sjónarmið veita góða leiðbeiningu í mörgum tilfellum. Dæmi: Trésmíðameistarinn A biður þrjá af verkamönnum sínum að vinna sem handlangarar í eina viku hjá trésmíðameistaranum B. Verkamennirnir taka áfram kaup hjá A, en hann fær það síðar endurgreitt hjá B. Hér myndi vinnuveit- andaábyrgðin vegna skaðaverka verkamannanna skv. áður greindu verða lögð á B. 1 öðrum tilfellum veita fyrrnefndar leiðbeiningarreglur ekki fullnægjandi svör. Dæmi: Bæjarfélag fær leigða malbikunarvél hjá X, vegna þess að vél bæjarins bilar. Malbikunarvélin er síðan notuð við viðhald gatna bæjarins. Stjórnandi vélarinnar (fastur starfsmaður X) veldur af gáleysi þriðja aðila tjóni. Hér má líta svo á, að vélin og stjórn- andi hennar (sem þó þiggur laun hjá X) séu eðlilegir þættir í þessum framkvæmdum kaupstaðarins. Frá bæjardyrum þriðja aðila (tjónþola) sýnist stjórnandi vélarinnar vera einn af starfsmönnum bæjarins. Samkvæmt því ætti bæjarfélagið að bera vinnuveitandaábyrgð á gá- leysi þessa manns jafnt og eigin starfsmanna. Sú niðurstaða er þó naumast í samræmi við meginreglur norræns skaðabótaréttar um vinnuveitandaábyrgð.17 A.m.k. verður að telja líklegt, að íslenskir dómarar myndu hafa tilhneigingu til að sýkna bæjarfélagið, en dæma X, þótt hann verði ekki beinlínis talinn (undir)verktaki hér. Um leigu vinnuvéla með stjórnanda er stuttlega rætt undir lok 3. kafla hér á eftir. Þó að rétturinn til að segja starfsmanni fyrir verkum og til að hafa eftirlit með honum sé, svo sem áður greinir, ekki einhlítur mælikvarði á það, hverjir geti bakað vinnuveitanda ábyrgð með saknæmri fram- 15 Málið Stevenson, Jordan & Harrison Ltd. v. Macdonald & Evans [1952] 1 T.L.R. 101. Útdráttur úr dóminum er birtur í Tony Weir, A. Casebook on Tort, 3. útg., London 1974, bls. 212. 16 Hellner, bls. 99. 17 Sjá þó U 1970, 483 H = Nord. Domss. 1971, 142 og U 1971, 262 H = Nord. Domss. 1972, 101. 56

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.