Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Blaðsíða 45
Sýni í glösum A voru tekin til ákvörðunar eftir að hafa verið geymd
í kæliskápi í 4—6 daga. Magn alkóhóls í blóði var mest 1,36%0 og
minnst 0,66%0 og að meðaltali 0,90%o. 1 svigum eru sýnd þau vikmörk
frá mælingargildum, er Skaftason & Jóhannesson (1975) hafa sett
við ákvarðanir á alkóhóli í blóðsýnum með gasgreiningu á súlu.
Magn alkóhóls í sýnum í glösum B, sem geymd voru í kæliskápi og
tekin voru til ákvörðunar fjórum vikum eftir sýnatöku, var að meðal-
tali 0,88%o. I glösum A-A var alkóhól ákvarðað eftir geymslu í kæli-
skápi í samtals fimm vikur frá töku sýna. Var magn alkóhóls þá að
meðaltali O,87%0. Alkóhól var loks ákvarðað í glösum B-B sjö vikum
eftir að sýni voru tekin. Magn alkóhóls var þá að meðaltali 0,86%0.
Magn alkóhóls í sýnum í giösum B, A-A og B-B var í engu tilviki utan
þeirra vikmarka, sem sýnd eru fyrir sýni í glösum A.
Niðurstöðutölur alkóhólákvarðana í sýnum í glösum C, D og D-D
eru sýndar í töflu 2.
Alkóhól var ákvarðað í sýnum í glösum C og D tveim vikum eftir
að þau voru tekin. Höfðu sýnin þá verið send í flugpósti til Isafjarðar
eða Egilsstaða og aftur. Var magn alkóhóls í sýnum þessum að með-
altali 0,87%o og 0,88%0. Sýni í glösum C-C höfðu hins vegar verið
geymd í kæliskápi eftir flutning í pósti frá ísafirði og þar til liðnar
voru sjö vikur frá töku þeirra. Þéttni alkóhóls í sýnum þessum var
að meðaltali 0,86%o. Magn alkóhóls í sýnum í glösum C, D eða C-C var
í engu tilviki utan þeirra vikmarka, sem sýnd eru fyrir sýni í glösum
A í töflu 1.
UMRÆÐA OG ÁLYKTANIR
Ef vissar tegundir baktería eða gersveppir eru í blóðsýnum, sem
tekin eru til ákvörðunar á alkóhóli, kann það að breyta niðurstöðutöl-
um verulega. Hætta á slíkum skekkjum er mun meiri, ef um líkblóð
er að ræða en blóð úr lifandi mönnum (Curry, 1972).
Venjulega leiðir örverugróður fremur til aukins alkóhólmagns í
líksýnum en minnkunar. Örverur geta þannig beinlínis myndað alkó-
hól. Við liagstæð skilyrði (geymd við 37° í ca. 12 klst.) getur myndast
mjög verulegt magn alkóhóls í blóðsýnum, sem tekin hafa verið úr
líkum (allt að því 1,5%0). Hitt er þó einnig vel þekkt, að þéttni alkó-
hóls minnkar í sýnum, sem tekin eru úr líkum og geymd. Eru í þessu
tilviki væntanlega að verki enzým í vefjum hins látna auk enzýma í
þeim örverum, sem fyrr greinir. Má líta svo á, að umræddar breyting-
ar, þ.e.a.s. myndun alkóhóls eða umbrot þess í líkblóði og öðrum lík-
91