Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 16

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 16
Hrd. 1965, 296. Maður féll d vinnupalli við Hörgshlið 26. íbúðarhús var í smíðum. Húseig'andi var sýknaður af bótakröfu múraranema, er slasaðist vegna vanbúnaðar vinnupalls. Segir í dómi, að húseigandi hafi ráðið „útlærða fagmenn með full rétt- indi til að standa fyrir verki þessu“ og verði honum því ekki gefið að sök hvernig fór. Hrd. 1972, 798. Slys við nýhyggingu þvottahussins Eimis i Síðu- ?núla 4. Starfsmaður þvottahússins Eimis datt af vinnupalli. Trésmíða- meistari, sem tekið hafði að sér að sjá um smíði hússins, var talinn hafa verið svo sjálfstæður framkvæmdaaðili gagnvart þvottahúsinu Eimi, að það bar ekki fébótaábyrgð á tjóninu, sem varð vegna mistaka trésmíðameistarans eða starfsmanna hans. Þessi sakarefni eru mjög lík. Húseigandi var í engu tilvikanna vinnu- veitandi þeirra manna, sem töldust eiga sök á slysi tjónþola. Húseig- andi gerði verksamning við einn eða fleiri verktaka og hafði ekki nein þau afskipti af verkframkvæmdum, sem hér skipta máli, eins og t.d. beina stjórn verksins eða eftirlit með vinnubrögðum, áhöldum eða útbúnaði. Með dómunum er því slegið föstu, að sá, sem sjálfstæður verktaki vinnur fyrir, er almennt ekki skaðabótaskyldur vegna athafna verktakans eða starfsmanna hans. Segja má, að verkaskipting húseig- anda og verktaka og réttarsamband þeirra yfirleitt, hafi í þessum þrem dómum verið mjög einfalt. í öðrum tilvikum geta aðstæður verið flóknari, sbr. t.d. Hrd. 1957, 414. Slys við smiði KR-hússins i Reykjavík. Knattspyrnufélag Reykjavíkur var dæmt bótaskylt að hluta gágnvart trésmið, er meiddist við fall af þaki íþróttahúss félags- ins við Kaplaskjólsveg. Slysið varð að nokkru rakið til skorts á öryggisbúnaði. Efni samnings KR og trésmíðameistara þess, sem sá um smíði hússins, var óljóst. KR taldi trésmíðameistarann hafa verið verktaka og bæri félagið því ekki bótaábyrgð, enda hafi trésmíðameistarinn ráðið tjónþola og sagt honum fyrir verk- um. Trésmíðameistarinn taldi sig aftur á móti hafa verið ráðinn til þess að vera verkstjóri við byggingu hússins. Fram kom, að formaður íþróttaheimilisnefndar KR hafði stöðugt eftirlit með byggingaframkvæmdum við húsið. Formaðurinn var sérfróður um byggingamálefni (arkitekt) og má ráða af dóminum, að hon- 62

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.