Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Qupperneq 21

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Qupperneq 21
þeirra, Ó . .Þótti Ó þess vegna bera ábyrgð á mistökum sam- verkamanns slasaða og var Ó dæmdur til að bæta tjónið að % hlutum, en Ys varð slasaði að bera sjálfur vegna eigin sakar. Um þátt Geislahitunar í málinu segir, að fyrirsvarsmenn hennar hafi hvorki samið um verkið við slasaða og samverkamann hans né stjórnað framkvæmd þess. Var „því eigi fyrir hendi það réttar- samband, er veiti gagnáfrýjanda ... rétt til bóta úr hendi .. . Geislahitunar.“ Með vísun til þessa var Geislahitun sýknuð af kröfu slasaða. Hrd. 1968, 132. „Geislahitun 11.“ Framkröfumál „aðalvinnuveit- anda“ gegn þriðja aðila. Ó höfðaði mál gegn Geislahitun h/f til heimtu þess fjár, sem hann greiddi samkvæmt dóminum í Hrd. 1964, 268. 1 yngri hæsta- réttardóminum segir, að gögn málsins beri með sér, að Ó hafi einungis tekist á hendur gagnvart Geislahitun að ráða starfs- menn til niðurrifs á reykháfnum og vísa þeim á tilteknum tíma til vinnustaðar, en hafi undanskilið sig verkstjórn og „starfs- drottinsskyldum.“ Síðan segir í dóminum, að framkvæmdastjóra Geislahitunar hafi verið hæg heimatökin að fela verkstjóra sín- um, sem hann kvaddi til að fara á vinnustað, að taka þar verk- stjórnina að sér. Að svo vöxnu máli verði sú vangæsla Ó, að skýra starfsmönnum eigi frá því, hvernig háttað var „starfs- herraábyrgð" og verkstjórn ekki látin valda því, að Ó glati þeim rétti sínum, að á Geislahitun falli að lokum „starfsdrottins- ábyrgð“ á verkinu. Var krafa Ó því tekin til greina. Það er einkum fyrri dómurinn, er skiptir máli um efnið, sem hér er til umræðu. Athygli vekur, að Geislahitun er sýknuð. 1 því sam- bandi vaknar sú spurning, hvort Geislahitun hafði rétt (eða skyldu) til að stjórna múrbrotsmönnunum og líta eftir þeim. Hæstréttur svarar þeirri spurningu játandi í dóminum í Hrd. 1968, 182 („Geislahitun II.“). Þar segir orðrétt: „Voru og framkvæmdastjóra áfrýjanda [Geislahit- unar] hæg heimatökin að fela verkstjóra sínum, sem hann kvaddi til að fara á vinnustað á hinum tilsetta tíma, að taka þar verkstjórnina að sér.“ Fram kemur í Hrd. 1964, 268 að verkstjóri Geislahitunar kom á vettvang eftir að verkið var hafið, en gaf engin fyrirmæli um fram- kvæmd þess. Auk verkstjórans kom annar starfsmaður Geislahitunar á staðinn áður en verkið hófst og sagði hann verkamönnunum tveim, hvar bora ætti gat á reykháfinn. Verður varla mælt á móti því, að 67

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.