Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Page 24

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Page 24
stöðu til þessarar málsástæðu, en í sératkvæði eins dómara segir, að dyravörðurinn hafi í umrætt sinn verið við dyravörslu 1 þágu og þjónustu veitingahússins. Beri eigandi þess því skaðabóta- ábyrgð á athöfnum dyravarðarins við það starf. Það mun tíðkast, að veitingahús ráði lögreglumenn til dyravörslu. Taka þeir þá það starf að sér utan vinnutíma síns í lögreglunni og gegn fullri greiðslu frá veitingahúsi því, sem þeir vinna hjá. Ekki eru þeir einkennisklæddir við dyravörsluna. Athafnir slíkra dyravarða eru lögreglunni alveg óviðkomandi, enda hefur hún almennt ekki frek- ar en aðrir atvinnuveitendur afskipti af því, sem starfsmenn taka sér fyrir hendur utan starfsins. Hér er því ekki einu sinni um að ræða ,,lán“ á starfsmönnum. Af framansögðu er augljóst, að engin skilyrði eru til að leggja vinnuveitandaábyrgð á hið opinbera vegna skaðaverka lögreglumanns, sem vinnur hjá veitingahúsi með þessum kjörum. Nú verður leitast við að drága saman meginniðurstöður ofangreindra dóma og mun fyrst minnst á sýknudóma. í fyrstnefndu dómunum þremur (um Mjólkurfélagshúsið, Hörgshlíð 26 og Þvottahúsið Eimi) kom ekkert fram um, að húseigendur ættu sök á slysi. Húseigendur höfðu ekki vald til að stjórna smiðum eða öðrum starfsmönnum, sem þarna voru að verki. Starfsmennirnir voru óvéfengjanlega undir stjórn kunnáttumanna, sem tekið höfðu að sér ákveðin verk. Hér var um dæmigerða sjálfstæða verktaka að ræða. Þegar frá er talið fyrra Geislahitunarmálið („Geislahitun I.“), eru aðrir sýknudómar aðeins tveir, þ.e. vörubílstöðvai’dómurinn og dómur- inn um hrossareksturinn. í hinum fyrri var heimild vörubílstöðvar- innar til stjórnunar og annarra afskipta svo takmörkuð, að vinnuveit- andaábyrgð varð eigi lögð á stöðina. Tjónvaldur (eigandi bifreiðarinn- ar) var með öðrum orðum sjálfstæður framkvæmdaaðili. 1 hrossamál- inu voru tengsl þéss sem krafinn var um bætur (bóndans) og „hjálp- armanna" enn lausari. Þar gat bóndinn í raun ekki haft nein áhrif á gerðir þeirra, sem tjóni ollu. Um síðasta sýknudóminn („Geislahitun I.“) hefur verið fjallað all- ítarlega hér að framan og vísast til þess. Var niðurstaða hugleiðinga um hann sú, að samkvæmt re'glum um vinnuveitandaábyrgð hefði eigi verið rétt að sýkna Geislahitun. Er þetta eini sýknudómurinn, sem telja má, að fari í bága við hefðbundnar skoðanir á skilyrðum vinnuveitanda- ábyrgðar. Dómurinn um prentsmiðjuþakið á Akureyri hefur nokkra sérstöðu meðal mála þar sem ekki var sýknað. Ábyrgð húseiganda virðist hér 70

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.