Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Side 47
hverjum einstaklingi. Yrði þá annað sýnið sent til ákvörðunar á alkó-
hóli með venjulegum hætti eins fljótt og unnt væri. Hitt sýnið mætti
geyma innsiglað í kæliskápi hlutaðeigandi lögregluembættis í a.m.k.
mánuð. Mætti þá senda það til rannsóknar, ef hlutaðeigandi einstakling-
ur eða lögmaður hans bæru brigður á réttmæti ákvörðunar alkóhóls í
fyrra sýni. Ætti hag einstaklingsins þannig að vera betur borgið en nú
er og staða lögreglustjóra sömuleiðis traustari en nú er. 1 þessu sam-
bandi skal þó enn á það bent, að langæskilégast væri, ef þess er yfir-
leitt nokkur kostur, að taka bæði blóðsýni og þvagsýni úr einstakling-
um, sem grunaðir eru um brot á umferðarlögum (sbr. Skaftason &
Jóhannesson, 1975). Tregða á þessu sviði er þó næsta ótrúleg (Árs-
skýrsla, 1978).
Að lokum skal á það bent, að natríumflúoríð varnar einnig segamynd-
un eða storknun í blóðsýnum. Er mjög mikilsvert, að sýni séu vel
segavarin og engu miður en rotvarin. Því er nauðsynlegt að snúa
glösunum vendilega, sbr. reglur dómsmálaráðuneytisins, eftir að sýni
er komið í þau og þannig, að blóðið blandist vel natríumflúoríði. Helsti
galli við notkun natríumflúoríðs í blóðsýnum er sá, að efnið getur
truflað ákvörðun nokkurra róandi lyfja og svefnlyfja. Lyfjamælingar
eru þó yfirleitt gerðar í serum. Eru blóðsýni því skilin og ségavarnar
þannig ekki þörf.
HEIMILD ASKRÁ:
Ársskýrsla: Ársskýrsla Rannsóknastofu í lyfjafræði árið 1978 (p. 8).
Curry, A. S.: Advances in Forensic and Clinical Toxicology. CRC Press, Cleveland,
Ohio, 1972 (pp. 27—28).
Skaftason, J. & Þ. Jóhannesson: Ákvarðanir á alkóhóli (etanóli) í blóði. Tímarit
lögfræðinga 1975, 25, 5—17.
Smalldon, K. W.: Ethanol Oxidation by Human Eythrocytes. Nature 1973, 245, 266-267.
Frá Rannsóknastofu í lyfjafræði, pósthólf 884, Reykjavík.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
til leigu að Hafnarstræti 11.
Upplýsingar í síma 21750 og 14824.
93