Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Side 32

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Side 32
dómara á réttargæzluþörfinni. Dómari getur skipað réttargæzlumann að eigin frumkvæði, en oftast mundi ákvörðun byggð á beiðni söku- nauts eða rannsóknaraðila. Mun ekki þurfa samþykki sakbornirigs til skipunar að því er varðar þau tilvik, er falla undir 3. mgr. 80. gr. Ákvæði 14. og 15. gr. 1. 107/1976 eru rökstudd með því í greinargerð, að við flutning frumrannsóknar úr hendi dómara yfir til rannsóknar- lögréglu geti hlutlaus dómari ekki haft sama eftirlit með henni og áður. Hætta sé því á, að staða sakbornings kunni að versna við breyt- inguna frá því sem verið hefur. Mestu máli skiptir, hvort tryggt verð- ur í framkvæmd, að dómara berist beiðni eða upplýsingar varðandi þá sökunauta, sem helzt þurfa á vernd að halda, svo og að dómarar sýni hæfilega lipurð við notkun heimildarinnar, sbr. 1. mgr. 81. gr. oml. Heimild 5. mgr. 80. gr. hefur nú sjálfstætt gildi aðeins utan þeirra tilvika, er sökunautur á lögvarinn rétt til skipaðs réttargæzlumanns vegna handtöku eða gæzluvarðhalds. Grunaður maður, sem fengið hefur skipaðan réttargæzlumann, á rétt á því, að réttargæzlumaðurinn sé viðstaddur yfirheyrslur hjá rann- sóknailögreglu, enda þyki það bættulaust vegna rannsóknar málsins. Dómari úrskurðar um þetta atriði, ef ágreiningur verður, sjá 2. mgr. 86. gr. oml., sbr. 15. gr. 1. 107/1976. I 1. mgr. 86. gr. oml. er annað ákvæði, er varðar þetta efni. Upphaflega hljóðaði það svo: ,,Ef verj- andi er skipaður, áður en rannsókn er lokið, er honum rétt að vera við prófun sökunauts, enda þyki dómara það hættulaust vegna rann- sóknar málsins". Einar Arnórsson færir að því rök, að verjanda hljóti þrátt fyrir þetta orðalag að vera bæði rétt og skylt að gæta hagsmuna sakbornings við vitnaleiðslur og matsgerðir.5) Hið yngra ákvæði 2. mgr. 86. gr. lætur ósagt um þetta atriði. Verður ákvæðið vart talið bundið við yfirheyrslu sakbornings eins. Réttargæzlumaður á almennt rétt á því að vera viðstaddur vitnaleiðslur í máli skjólstæðings síns hjá rannsóknarlögreglu. Fyrirvarinn um, að dómara þyki nærvera verjanda hættulaus, var felldur brott úr 1. mgr. 86. gr. með 2. gr. 1. 53/1979. Ekki var hróflað við hliðstæðum fyrirvara í 2. mgr. 86. gr. Má draga þá ályktun af samanburðarskýringu þessara ákvæða, að aldrei mégi meina réttargæzlumanni (verjanda) að vera við yfir- heyrslu skjólstæðings síns, en að lögreglumaður eða yfirmaður hans meti, hvort hættulaust sé að leyfa réttargæzlumanni að vera við vitna- leiðslur, mats- og skoðunargerðir eða yfirheyrslu annarra sakborninga. Heimildin til að vera við yfirheyrslur er bundin við skipaðan réttar- 5) Sjá Einar Arnórsson, „Meðferð opinberra mála“, Tímarit lögfræðinga 1951, bls. 114-115. 206

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.