Tímarit lögfræðinga - 01.11.1986, Qupperneq 21
til varðskipa og fiskiskipa (útgerða og áhafna) fyrir björgun fiskiskipa,
sem stærri eru en 100 rúmlestir. Samkomulagið, sem gert var 16. sept-
ember 1986, var einnig undirritað af fulltrúum Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands og Sj ómannasambands Islands. Tekur það til
björgunar, þegar hætta var ekki yfirvofandi, sbr. síðari hluta 2. tl. 1.
mgr. 165. gr. sigll. 11. gr. samkomulagsins segir m.a., að forsenda þess,
að tilvik falli undir það sé, að bjargendur hafi ekki þurft að leggja sig
í teljandi hættu við björgunina.
Efni samkomulagsins verður ekki rakið frekar hér, en í því eru á-
kvæði um, að mál skuli lagt fyrir gerðardóm, ef ágreiningur rís um,
hvort hætta hafi verið yfirvofandi eða hvort bjargendur hafi lagt sig
í teljandi hættu.
Ætla má, að samkomulag þetta verði til þess að fækka dómsmálum
um björgun.
1 framhaldi af samkomulaginu var lagt fyrir Alþing'i frv. þess efnis
að samræma reglur laga nr. 25/1967 um Landhelgisgæslu íslands að
mestu reglum sigll. um skiptingu björgunarlauna (109. löggjafarþing
1986, Nd. 92. mál, þingskjal 93). Samkvæmt frv. er lagt til, að 12. gr.
laga nr. 25/1967 orðist svo: „Nú fær skip eða loftfar Landhelgisgæsl-
unnar laun fyrir björgun verðmæta og fer þá um ráðstöfun björgunar-
launa eftir ákvæðum laga, þó svo að hluti áhafnar skiptist að réttri til-
tölu miðað við föst mánaðarlaun hvers og eins. Hluti Landhelgisgæsl-
unnar af björgunarlaunum rennur í Landhelgissjóð.“ Ákvæði þessu er
ætlað að gilda um björgun eftir 15. september 1986, enda gildir um-
rætt samkomulag frá 16. september 1986.
NOKK.UR HLIBSJÓNARRIT
Alþingistíðindi.
Betænkning nr. 315 1962. Khöfn 1962.
Brækhus, Sjur. Bergning. Oslo 1967.
Innstilling II fra Sj0lovkomitéen. Oslo 1961.
Innstilling III fra Sj0lovkomitéen. Oslo 1961.
Ólafur Lárusson. Sjóréttur. Rvík 1951.
— Sjóréttur. 2. útg. fjölrituð. Magnús Þ. Torfason annaðist útgáfuna. Rvík 1971. (Tilvitn-
unin „Ólafur Lárusson" merkir 2. útg., nema annað sé tekið fram.)
SOU 1963:20. Bargarlönens fördelning, sjöförklaring m. m. Stockholm 1963.
167