Tímarit lögfræðinga - 01.11.1986, Síða 63
Stjórn Lögmannafélags Islands 1986-1987. Talið frá vinstri: Gestur Jónsson
gjaldkeri, Hákon Árnason varaformaður, Sveinn Snorrason formaður, Vilhjálm-
ur H. Vilhjálmsson ritari, Björgvin Þorsteinsson meðstjórnandi, Hafþór Ingi
Jónsson framkvæmdastjóri.
sjálfstætt starfandi lögmenn hæglega annast þennan málflutning. Frumvarp
þetta varð síðan að lögum fyrir þinglok.
Ályktanir voru samþykktar vegna málefna er tengjast Hæstarétti. Átalinn
var seinagangur í útgáfu hæstaréttardóma og bent á, að með nýrri tækni ætti
að vera hægt að hraða útgáfunni verulega. Þá ályktaði stjórnin um húsnæðis-
mál Hæstaréttar, sem talin voru óviðunandi, og var bent á þann möguleika
að gera Safnahúsið við Hverfisgötu að dómhúsi Hæstaréttar þegar núverandi
starfsemi flyst úr húsinu.
Eins og árið á undan komu fram hugmyndir hjá stjórnvöldum um að afla
tekna í ríkissjóð með því að gera m.a. lögmönnum að innheimta söluskatt af
þjónustu sinni. ítrekaði stjórnin fyrri ályktun sína um málið, þar sem lagst var
gegn hugmyndum af þessu tagi. Hafa stjórnvöld í bili a.m.k. fallið frá þessum
hugmyndum.
Tvisvar á starfsárinu sá stjórnin sig knúna til að gera samþykktir um svipt-
ingu málflutningsréttinda. Slíkar samþykktir eru gerðar með vísan til 1. mgr.
6. gr. laga um málflytjendur nr. 61/1942, þar sem segir, að leggi stjórn félags-
ins einróma til, að ákveðinn félagsmaður verði sviptur leyfi vegna tiltekinna
óviðurkvæmilegra athafna í starfi sínu, geti dómsmálaráðherra tekið af honum
leyfi til málflutnings um stundarsakir, eða að fullu og öllu ef miklar sakir eru.
Þegar þetta er ritað er ekki til þess vitað að dómsmálaráðherra hafi brugðist
neitt við þessum samþykktum.
209