Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Qupperneq 6
vinna hjá honum, og eina slíka ferö lagði ég á mig til hans morguninn eftir
að hann dó en kom að auðum stólnum hans.
Ég minnist þess hve fljótur hann var að átta sig á aðalatriðum máls, sem
hann fékk til meðferðar, hversu flókið sem það nú annars var, og þess hversu
markvisst hann hagaði undirbúningsvinnu sinni fyrir málflutning. Lagatilvitn-
anir og fordæmi hafði hann á reiðum höndum, og ávallt leitaði hann fanga
hjá innlendum og erlendum fræðimönnum og I úrlausnum norrænna dóm-
stóla. Það var alveg með ólíkindum hversu afkastamikill hann var á þessu
sviði sem og almennt til vinnu og máttu yngri menn hafa sig alla við að fylgja
honum eftir. Ég minnist þess einnig af hve miklum sannfæringarkrafti hann
flutti mál sitt, bæði yfir skrifborð sitt við mig, þegar málin voru rædd, og fyrir
rétti. Það má með fullum sanni segja að hann hafi verið mikill málafylgju-
maður.
Stundum voru fleiri mál rædd en lagaefni. Kom það þá vel í Ijós hversu
víðlesinn hann var og fylgdist vel með allri þjóðmálaumræðu, og aldrei fór
ég í grafgötur með hvaða skoðun eða álit hann hafði á mönnum og málefnum
án þess að hann legði nokkrum manni illt til, og ég minnist aldrei annars en
málefnalegrar umræðu.
Guðjón varð fyrstur sjálfstætt starfandi lögfræðingur í Hafnarfirði, og hafði
hann starfrækt málflutnings- og innheimtuskrifstofu samfellt í 38 ár þegar
hann féll frá langt fyrir aldur fram. Það voru ekki margir af starfsbræðrum
hans sem höfðu trú á því um miðbik aldarinnar að I Hafnarfirði væri unnt að
starfrækja lögfræðiskrifstofu, enda var Hafnarfjörður I þá daga ekki sá stóri
og blómlegi bær sem hann er í dag. Að vísu voru frumbýlingsárin erfið, og
það þætti ekki mikill glæsileiki eða stíll yfir því í dag að opna lögfræðiskrif-
stofu í gamla herberginu sínu í foreldrahúsum með vonina og bjartsýnina
eina á skrifborðinu. En jafnframt því að reka lengst af umboðsskrifstofu fyrir
Almennar tryggingar í Hafnarfirði meðfram málflutningsstörfum náði hann
að festa rætur sem lögmaður í Hafnarfirði. Síðan hafa margir fetað í fótspor
hans, og nú eru 10 sjálfstætt starfandi lögmenn I Hafnarfirði.
Það er mál manna sem til þekktu, að Guðjón naut mikillar gæfu í einkalífi
slnu, og ber þar hæst ágætt kvonfang og barnalán. Sjálfur þykist ég hafa
orðið vitni að því að hann naut friðar og góðrar umönnunar á heimili sinu
og þar var góður heimilisbragur.
Um leið og ég þakka Guðjóni okkar stuttu samfylgd og góða viðkynningu,
votta ég konu hans og börnum og öllum aðstandendum hans samúð mína.
Með Guðjóni er genginn mætur maður.
Valgarður Siguðsson
136