Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Blaðsíða 37

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Blaðsíða 37
3) Gagnrýni á skilning pósitívista á hugtökunum „réttur“, „skylda“ og öðrum réttarheimspekilegum hugtökum, þar sem því er hafnað að þau vísi til raunverulegra aðstæðna í samfélagi manna. Að hinu leyt- inu má segj a að í þessu endurspeglist best sá mismunur sem er á þeim. 4) Að síðustu deila þeir þeirri hugmynd að lögin gegni lykilhlut- verki í því að móta hegðun manna (og jafnvel siðferðishugmyndir), til samræmis við þarfir samfélagsins. Án laga og réttar væri mann- legt samfélag óhugsandi. Það sýnir ef til vill vel mikilvægi skandinavísku raunhyggjunnar að í flestum þeim ritum sem fjalla um sögu réttarheimspekilegra hug- mynda er sérstakur kafli helgaður henni. Mikilvægasta framlag henn- ar er að sumra mati gagnrýni þeirra í kenningar pósitívista sem nefnd- ir eru í lið 2 og 3 hér að framan.30 Sérstaklega er þá átt við Háger- ström sem benti á að hugmynd þeirra um valdhafann og skipanir hans sem grundvöll laga og réttar væru í raun meira og minna smit- aðar af náttúruréttarkenningum. 1 stað eilífra og óumbreytanlegri rétt- inda sem undirstöðu réttarins væri nú kominn valdhafi sem með skip- unum sínum krefðist skilyrðislausar hlýðni að viðlögðum refsingum. Þetta væri hugarburður með sama hætti og grunnreglur náttúrurétt- arins. Ennfremur má hér nefna gagnrýni þeirra á viljakenningu pósi- tívista, sem oftsinnis hefur verið nefnd. 51 Það fer ekki hjá því að yfirlitið hér að framan beri þess merki hvað höfundur þessarar greinar telur sjálfur mikilvægast í kenningum þeirra Hágerströms, Lundstedts og Olivecrona, enda segir það sig sjálft að ýmislegt hefur orðið útundan. Lítið hefur farið fyrir gagnrýni enn sem komið er og er ástæðan sú að tilgangurinn með greininni var fyrst og fremst kynning á þessum hugmyndum, en síður gagnrýnin um- f j öllun. Það má taka undir með þeim Hágerström, Lundstedt og Olivecrona að gallinn við eldri kenningar í réttarhéimspeki er að þær virðast ekki gefa raunsæja mynd af réttarskipuninni eins og fólk upplifir hana frá degi til dags. Hins vegar reisa þeir kenningar sínar meira og minna á því sem þeir telja viðtekin og almenn viðhorf til laga og réttar. Dæmi um þetta er sú skoðun Hágerströms að menn hafi trúað því að með ákveðnum orðum og athöfnum, sem helst megi líkja við galdur, hafi þeir skapað eins konar vald sem þeir kalla rétt. Það eru hugmyndir af þessu tagi sem ber að rannsaka ef menn vilja öðlast 50 Sjá t.d. í þessu sambandi W. Friedman: Legal Theory, 5. ed., New York 1967. s. 306. 51 Sjá t.d. Friedman: Legal Theory, s. 306.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.