Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Blaðsíða 48

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Blaðsíða 48
ar slysa- og dánarbótakröfu á hendur útgerðinni með sama hætti og bætur frá Tryggingastofnun ríkisins." Síðar féllu samningsákvæði sem þetta úr kjarasamningum af ástæðum, er þeim, sem þetta ritar, er ókunnugt um.7 Úr því að sett lög eða samningar veita ekki svar, er rétt að huga að rökum fyrir því, hvaða aðferð skuli beitt við frádrátt bóta slysatrygg- ingar sjómanna, þegar sök er skipt. Lögmæltar slysatryggingarbætur frá Tryggingastofnun ríkisins og samnings- eða lögbundin laun í slysaforföllum hrökkva almennt ekki til að greiða nema hluta af fjártjóni manns, sem verður lengi óvinnu- fær eða hlýtur varanleg örkuml vegna slyss. Þess vegna hafa ákvæði um sérstaka slysatryggingu til viðbótar slysatryggingu Trygginga- stofnunar ríkisins alllengi verið í kjarasamningum að kröfu stéttar- félaga, þ.ám. samtaka sjómanna. Frá 1972 hefur verið kveðið á um slíka slysatryggingu sjómanna í siglingalögum. Öll þessi bótaúrræði eru í eðli sínu félagsleg. Tilgangur þeirra allra er hinn sami, þ.e. að veita launþega, sem verður óvinnufær vegna slyss (eða sjúkdóms), fébætur vegna tímabundins eða varanlegs atvinnutjóns. Úrræðin eru mjög mikilvæg, ekki síst vegna þess að launþegi nýtur þeirra, þótt hann eigi ekki skaðabótakröfu vegna tjóns síns. Löggjafinn hefur hér sem í öðrum svonefndum velferðarríkjum lengi talið sjálfsagt að halda uppi skyldutryggingu vegna slysa launþega. Slysalaun og bætur úr umsömdum slysatryggingum eru fyrir löngu orðin hluti af kjörum launþega. Verður ekki séð, að rök standi til þess, að skaðabótaskyld- ur atvinnurekandi skuli einn hagnast á því, að tjónþoli á rétt á samn- ingsbundnum slysalaunum eða slysatryggingarbótum, enda hefur laun- þegi í raun tekið þátt í að greiða kostnað af þessum úrræðum með vinnu sinni. Skiptir hér ekki máli, þótt vinnuveitendur annist greiðsl- ur iðgjalda eða slysalauna, því að vitanlega mætti alveg eins semja svo um, að þeir inni af hendi fjárframlag til stéttarfélaga, sem síðar sjái um formlegar greiðslur iðgjalda eða slysalauna. Af þessum ástæð- um verður að telja eðlilegt að beita sömu aðferð við frádrátt samnings- bundinna bóta (slysalauna og slysatryggingarfjár) og bóta frá Trygg- ingastofnun ríkisins, þegar skaðabótakrafa er skert vegna eigin sakar tj ónþola. Hreyfa má því, hvort ástæða þess, að dómarar beita frádráttar- aðferð I í H 1987, 587 og H 1982, 1440 sé sú, að þeir telji slysatrygg- 7 I núgildandi kjarasamningum, sem varða aðra launþega en sjómenn, eru oftast ákvæði um, að bætur umsaminnar slysatryggingar komi „að fullu til frádráttar þeim skaðabót- um, er vinnuveitanda kann að verða gert að greiða." 178
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.