Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Síða 61
Talið frá vinstri: Gestur Jónsson gjaldkeri, Hákon Árnason varaformaður,
Sveinn Snorrason formaður, Gunnar Guðmundsson ritari, Pétur Guðmundar-
son meðstjórnandi, Hafþór Ingi Jónsson framkvæmdastjóri.
Hér að framan hefur verið gerð nokkur grein fyrir starfsemi L.M.F.Í. á síð-
asta starfsári. Þar að auki hafði félagið afskipti af ýmsum málaflokkum, sem
ekki er talin ástæða til að rekja á þessum vettvangi. Þá bárust félaginu fjöl-
mörg erindi jafnt frá innlendum sem erlendum aðilum um hin ýmsu álitaefni,
er tengjast starfsemi L.M.F.Í. og lögmanna almennt. Hefur verið reynt að
greiða úr þessum erindum jafnóðum og þau hafa borist.
Úr stjórn gengu Sveinn Snorrason hrl. og Gestur Jónsson hrl. Formaður
var kjörinn Hákon Árnason hrl. Auk formanhs eiga nú sæti í stjórninni Sveinn
Haukur Valdimarsson hrl., varaformaður, Viðar Már Matthíasson hrl., gjald-
keri, Gunnar Guðmundsson hdl., ritari, og Þórunn Guðmundsdóttir hrl., með-
stjórnandi. Framkvæmdastjóri er Hafþór Ingi Jónsson hdl.
Hafþór Ingi Jónsson
191