Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Page 62
Ávíð
01* dreif
DÓMARAÞING
Aðalfundur Dómarafélags íslands, dómaraþing, var haldið dagana 3. og 4.
nóvember s.l. í Borgartúni 6, Reykjavlk.
Þingið sóttu um 80 dómarar. í upphafi þingsins fluttu ávörp Halldór Ás-
grímsson, dómsmálaráðherra og Sveinn Haukur Valdimarsson hrl., varafor-
maður Lögmannafélags íslands.
Rúnar Guðjónsson, sýslumaður stjórnaði þingstörfum. Formaður félagsins,
Friðgeir Björnsson yfirborgardómari flutti skýrslu stjórnar og Valtýr Sigurðs-
son, borgarfógeti, gjaldkeri félagsins gerði grein fyrir reikningum þess.
Skýrsla stjórnar er birt á öðrum stað í þessu hefti T.L.
Tvö aðalumræðuefni voru tekin fyrir á dómaraþinginu. Sjálfstæði og staða
dómara í nútíð og framtíð og lögkjör dómara. Framsögu höfðu Eggert Óskars-
son, borgardómari, Valtýr Sigurðsson, borgarfógeti og Skúli Guðmundsson,
deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Fundarmenn skiptu sér í tvo hópa eftir
umræðuefnum og stjórnuðu dr. Ármann Snævarr fyrrv. hæstaréttardómari og
Allan V. Magnússon, borgardómari hópunum. Þeir gerðu síðan þinginu öllu
grein fyrir niðurstöðum umræðna, en umræður voru miklar og líflegar.
í stjórn félagsins næsta starfsár voru kjörnir, Friðgeir Björnsson, yfir-
borgardómari, formaður, Haraldur Henrýsson, settur hæstaréttardómari, Hall-
dór Kristinsson, bæjafógeti og sýslumaður, Pétur Hafstein, bæjarfógeti og
sýslumaður og Valtýr Sigurðsson, borgarfógeti. í varastjórn voru kjörin
Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari og Már Pétursson, bæjarfógeti og
sýslumaður.
Síðdegis síðari þingdaginn þáðu félagsmenn og makar þeirra boð forseta
íslands frú Vigdísar Finnbogadóttur að Bessastöðum.
Um kvöldið snæddi hópurinn kvöldverð í boði dómsmálaráðherra Halldórs
Ásgrímssonar að Borgartúni 6.
BÓKAFREGNIR
Komið er út ritið Samningaréttur eftir Pál Sigurðsson prófessor í lögfræði.
Undirtitill er Yfirlit yfir meginreglur íslensks samningaréttar. Bókaútgáfa
Orators gaf út, Reykjavík 1987. Prentstofa G. Benediktssonar prentaði.
Bókin er 381 bls. í meðalstóru broti. Höfundur segir í formála: ,,Bók þess-
ari er ætlað að leysa af hólmi ritið „Fyrirlestra um samningarétt“, sem út kom
1978, svo og nokkra þætti og kafla um einstök atriði samningaréttar, er laga-
nemar hafa notast við fram til þessa. Jafnframt því að vera kennslubók er
ritinu ætlað að gagnast starfandi lögfræðingum sem handbók, eftir því sem
192