Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 5

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 5
Davíð Þór Björgvinsson: SAMANBURÐARLÖGFRÆÐI Davíd Pór Björgvinsson er dósent við lagadeild Háskóla íslands EFNISYFIRLIT 1. INNGANGUR 1.1 Oröið „samanburöarlögfræði" 1.2 Viöfangsefni samanburöarlögfræöinnar 1.3 Er samanburðarlögfræði sjálfstæö grein innan lögfræðinnar? 2. NYTSEMI SAMANBURÐARLÖGFRÆÐINNAR 3. ÁGRIP AFSÖGU GREINARINNAR 4. AÐFERÐIR 4.1 Afmörkun efnisins 4.2 Samanburðurinn 5. SKIPTING í RÉTTARKERFI 6. VESTRÆN RÉTTARKERFI 6.1 Megineinkenni vestræns réttar 6.2 Staða sósíalísks réttar 7. ÖNNUR RÉTTARKERFI 8. SKIPTING VESTRÆNS RÉTTAR 9. LOKAORÐ 1. INNGANGUR 1.1 Orðið „samanburðarlögfræði“ Orðið „samanburðarlögfrœði“ er hér notað sem heiti á þeirri fræðigrein lögfræðinnar sem fæst m.a. við samanburð á rétti ríkja heimsins.1 Orðið er á ýmsan hátt óheppilegt þar sem það gefur ófullkomna mynd af því sem fjallað er um í greininni.2 Það vísar ekki til tiltekins viðfangsefnis eins og t.d. orðið 1 Heitið „samanburðarlögfræði" er þýðing á erlendu heitunum Comparative Law á ensku, Rechtsvergleichung á þýsku og droit comparé á frönsku. f dönsku lagamáli er notað heitið komparativ ret. 2 Erlendis hefur mönnum einnig gengið illa að finna heppilegt orð sem lýsir á fullnægjandi hátt því sem fengist er við í samanburðarlögfræði, sjá t.d. Mary Ann Glendon, Michael Wallace Gordon og Christopher Osakwe: Comparative Legal Traditions (Text, materials and cases on the Civil Law, Common Law and Socialist Law Traditions, with special Reference to French, West-German, English and Soviet Law), St. Paul. Minn. 1985, s. 1. (Hér eftir vísað til sem Glendon, Gordon og Osakwe). 203

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.