Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 73
FRÁ AÐALFUNDI DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS 1990
Aðalfundur Dómarafélags fslands, dómaraþing, var haldið dagana 1. og 2.
nóvember 1990 í Borgartúni 6, Reykjavík. Að lokinni setningarræðu formanns,
Friðgeirs Björnssonar yfirborgardómara, fluttu gestir þingsins ávörp þeir Óli Þ.
Guðbjartsson dómsmálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
og Gestur Jónsson formaður Lögmannafélags íslands.
Formaður félagsins lýsti í setningarræðu sinni þungum áhyggjum dómara af
því að húsnæði fyrir hina nýju dómstóla, sem taka eiga til starfa við gildistöku
aðskilnaðarlaganna, verði ekki tilbúið í tæka tíð. Benti hann á, sem margsinnis
hefur verið gert, að með setningu aðskilnaðarlaganna axlaði löggjafarvaldið
jafnframt þá ábyrgð að sjá nýjum dómstólum fyrir viðunandi húsnæði.
Fram hefur komið í samþykktum Dómarafélags íslands mikill áhugi á því að
ríkið kaupi Útvegsbankahúsið við Lækjartorg fyrir hinn nýja héraðsdómstól í
Reykjavík og aðkallandi húsnæðisvandi Hæstaréttar íslands verði leystur með
því að gera Safnahúsið við Hverfisgötu að dómhúsi Hæstaréttar.
í máli fjármálaráðherra kom fram að þunglega horfði með fjárútvegun til
þessa verkefnis.
Formaður félagsins flutti skýrslu stjórnar. Þar kom fram að helstu viðfangs-
efni félagsins voru að halda fræðafundi fyrir félagsmenn, gefa umsagnir um
lagafrumvörp og annast erlend samskipti.
Gjaldkeri félagsins, Valtýr Sigurðsson borgarfógeti, gerði grein fyrir reikn-
ingum félagsins. Fram kom að fjárhagsstaðan er bærileg, en umsvifin lítil.
Dómaraþing bar þess merki að þann 1. júlí 1992 taka gildi lög um aðskilnað
dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Aðalumræðuefnið á þinginu var frumvarp
til laga um meðferð opinberra mála en framsögu um það höfðu Eiríkur
Tómasson hrl. og Halldór Þorbjörnsson fyrrverandi hæstaréttardómari. Þá
kynnti Markús Sigurbjörnsson settur prófessor frumvarp til laga um skipti á
dánarbúum o.fl. og frumvarp til gjaldþrotaskiptalaga. Öll gera frumvörp þessi
ráð fyrir miklum breytingum á viðfangsefnum dómstóla og sýslumannsembætta
samfara gildistöku aðskilnaðarlaganna. Þorleifur Pálsson skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu gerði þinginu sérstaka grein fyrir fjölmörgum verkefnum
sem tengjast aðskilnaðinum.
Umræður voru miklar um öll þessi málefni. Ljóst er að veruleg umskipti verða
í dómsmálakerfinu samfara þessum breytingum og brýn þörf á endurmenntun
dómara og lögmanna þeirra vegna.
Friðgeir Björnsson yfirborgardómari og Haraldur Henrýsson hæstaréttar-
dómari gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu í félaginu.
í stjórn Dómarafélags íslands næsta starfsár voru kjörnir: Valtýr Sigurðsson
borgarfógeti formaður, Halldór Kristinsson bæjarfógeti og sýslumaður, Pétur
271