Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 9

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 9
Evrópu.7 Heimspekingar fóru í auknum mæli að líta á rannsóknir á gildandi rétti sem aðferð til að rannsaka eðli réttarins og ólíkar hugmyndir manna í því efni. Rannsóknir í samanburðarlögfræði voru þá orðnar nærtækt viðfangsefni. Þá fyrst var unnt að skapa samanburðarlögfræðinni traustan sess meðal greina lögfræðinnar. Strax í upphafi urðu umræður um aðferðir og tilgang greinarinnar líflegar. Þetta var m.a. aðalumræðuefnið á fyrsta alþjóðaþingi samanburðarlögfræðinga, sem haldið var í París árið 1900. 4. AÐFERÐIR Samanburður af því tagi sem lagður er stund á í samanburðarlögfræði getur verið á mismunandi stigum, allt eftir því hvert markmiðið með honum er hverju sinni. Ýmist getur verið um að ræða heildarsamanburð á réttarkerfum (macro- comparison) eða samanburð á einstökum réttarreglum (micro-comparison) og allt þar á milli. Hið síðarnefnda á einkum við þegar unnið er að undirbúningi nýrrar löggjafar. Á hvaða stigi sem samanburðurinn fer fram verður í grundvall- aratriðum að gæta sömu aðferða. Hér verður reynt að lýsa þessum aðferðum í stuttu máli. 4.1 Afmörkun efnisins Þegar lagareglur mismunandi ríkja eru bornar saman er nauðsynlegt að velja til samanburðar reglur sem gegna sama hlutverki.8 Þessi meginregla hvílir á þeirri staðreynd að í öllum ríkjum er í aðalatriðum verið að glíma við sömu vandamálin, en lögfræðilegar lausnir á þeim eru afar mismunandi. Þess vegna er nauðsynlegt að skilgreina úrlausnarefnið án tilvísunar til þeirra lögfræðilegu hugtaka sem notuð eru í eigin rétti. Þetta verður best skýrt með dæmi:9 í 31. gr. samningalaga nr. 7/1936, sbr. 1. gr. laga nr. 11/1986 um breytingu á þeim lögum, er að finna ákvæði um það sem nefnist „misneyting“ á máli lögfræðinnar. I ákvæðinu segir á þessa leið: Hafi nokkur maður notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða léttúð eða það, að hann var honum háður, til þess að afla sér hagsmuna eða áskilja sér þá þannig að bersýnilegur mismunur sé á hagsmunum þessum og endurgjaldi því er fyrir þá kom eða skyldi koma, 7 Hér er orðið „vildarréttur“ notað sem þýðing á erlenda orðinu „pósitivism“. Orðið er notað í grein eftir Sigurð Líndal: „Sögustefnan og Konrad Maurer“, Saga og kirkja, Afmælisrit Magnúsar Más Lárussonar, Rvk. 1988. 8 Sjá t.d. Zweigert og Kötz 1971, s. 29 og áfram, þar sem talað er um Grundprinzip der Funktionalitát. 9 Sjá hliðstætt dæmi í Ole Lando: Kort införing i komparativ ret, s. 87 og áfram (hér eftir vísað til sem Lando). 207

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.