Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 56

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 56
forsetavald. Það samrýmist ekki vel hugmyndum um eðlilega starfsskiptingu æðstu handhafa ríkisvaldsins, að starfandi forseti lýðveldisins sitji í dómi eða gegni öðrum störfum á sviði annarra þátta stjórnskipunarinnar. Þess má til samanburðar geta, að samkvæmt finnsku stjórnarskránni má forsætisráðherra eða eftir atvikum staðgengill hans hvorki gegna þingmennsku né ráðherrastörf- um, á meðan hann fer með forsetavald í fjarveru eða forföllum forseta landsins. Væri svipuð leið farin hér, þyrfti sjálfsagt að kveðja varadómara til setu í Hæstarétti, þegar forseti réttarins gegndi störfum forseta Islands, en það er út af fyrir sig ekki annað og meira en iðulega þarf að gera. Það má heldur ekki telja eftir sér fyrirhöfn eða eðlilegan kostnað við það að rækja embætti forseta Islands á hverjum tíma með þeim hætti, að það falli sem bezt að hugmyndafræði þeirrar stjórnskipunar, sem við viljum hafa og virða. VII. Þegar ísland varð lýðveldi hinn 17. júní 1944 og forseti landsins var kjörinn í fyrsta sinn, var gripið til þess einstæða ráðs að ætla æðstu handhöfum hinna þriggja greina ríkisvaldsins að koma í stað forsetans, þegar svo bæri undir. í þeim efnum tóku íslendingar engar hefðir í arf úr þeim konungsríkjum, sem þeir höfðu tilheyrt. Frá lýðveldistöku hefur mikið vatn runnið til sjávar, og hug- myndir manna um meðferð ríkisvalds hafa að sjálfsögðu tekið ýmsum breyting- um. Með hliðsjón af því, sem hér hefur verið fjallað um, verður að telja tímabært að hverfa frá þunglamalegri og gallaðri tilhögun til nútímalegri og hentugri stjórnarhátta varðandi meðferð á valdi hins kjörna þjóðhöfðingja. I því sam- bandi skulu hér í lokin dregin saman nokkur áherzluatriði: 1. Það er óþarflega þungt í vöfum að þurfa jafnan að kveðja þrjá menn til hins sama verks við æðstu stjórn ríkisins. 2. Það er mjög til baga og í andstöðu við eðli forsetaembættisins, sem á að vera friðarstóll og sameiningarafl, að ágreiningur kunni að rísa milli handhafa forsetavalds um framkvæmd þess og niðurstaða ráðist þá ef til vill af vilja tveggja handhafa í andstöðu við þann þriðja. 3. Það er vafasamt, að embættisathafnir handhafa forsetavalds öðlist stjórn- skipulegt gildi, nema þeir standi að þeim allir saman. Öðru máli gegnir hins vegar, þegar ágreiningur verður milli hinna þriggja handhafa og meirihluti ræður niðurstöðu. 4. Varamenn handhafa forsetavalds geta komið í þeirra stað, þegar þeim verður fengið það hlutverk með formreglum, þ.e. kjöri eða formbundinni ákvörð- un. 254
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.