Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 66
dómarfélagið vinnur nú til samræmingar á dómstólaskipun í sameinuðu Þýska-
landi.
IX. Danska dómaraþingið
Formaður félagsins sat þing danska dómarafélagsins sem haldið var í Snekk-
ersten við Helsingör dagana 5. og 6. október.
X. SEND
Samarbetsorganet för efterutbildning av nordiska domare, skammstafað
SEND, var stofnað 1988 af dómurum í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Danir og
íslendingar hafa allt til þessa ekki tekið þátt í þessari starfsemi. Aðalverkefni
samtakanna er endurmenntun dómara og hafa þau efnt til endurmenntunar-
námskeiða. Okkur hefur verið boðin þátttaka, en því miður ekki séð okkur fært
að þiggja þau boð vegna kostnaðar. Samtökin héldu fund í Reykjavík 24. ágúst
s.l. og var Dómarafélagi íslands boðin þátttaka í honum. Fundinn sat fyrir hönd
félagsins Allan Vagn Magnússon borgardómari og fylgir frásögn hans af
fundinum skýrslu þessari.
(Fylgiskjal I)
XI. Alþjóðasamtök dómara
Frá síðasta dómaraþingi hefur Alþjóðasamband dómara haldið tvö þing. Hið
fyrra var haldið í boði portúgalska dómarafélagsins í Macao dagana 23.-27.
október 1989. Macao er portugölsk nýlenda skammt frá Hong Kong. íslensku
þátttakendurnir á þinginu voru Friðgeir Björnsson, yfirborgardómari, Haraldur
Henrýsson hæstaréttardómari og Valtýr Sigurðsson borgarfógeti.
Síðara þingið var haldið í Helsinki í boði finnska dómarafélagsins dagana
17.-20. júní s.l. íslensku þátttakendurnir á þinginu voru Friðgeir Björnsson
yfirborgardómari, Pétur Kr. Hafstein sýslumaður og bæjarfógeti og Sigríður
Ingvarsdóttir héraðsdómari.
Frásagnir af þessum þingum fylgja skýrslu þessari. (Fylgiskjöl II og III)
XII. Umsagnir um lagafrumvörp
Stjórn félagsins hefur gefið umsögn um eftirtalin lagafrumvörp:
1. Frumvarp til laga um kyrrsetningu og lögbann o.fl.
2. Frumvarp til laga um breyting á lögum um stofnun og slit hjúskapar , nr. 60
29. maí 1972.
Stjórnin mælti með því að bæði þessi frumvörp yrðu samþykkt óbreytt.
Stjórnin hafði fengið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kyrrsetningu og
lögbann frá höfundi þess, Markúsi Sigurbjörnssyni prófessor og borgarfógeta á
næstsíðasta starfsári og komið á framfæri við hann breytingartillögum sem hann
tók til greina.
264