Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 17

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 17
7. ONNUR RETTARKERFI Samkvæmt skiptingunni hér að framan falla eftirtalin réttarkerfi utan vest- ræns réttar: Réttur austurlanda fjær, islamskur réttur, og réttur Hindúai' Þau ríki sem tilheyra þessum réttarkerfum eiga það sameiginlegt að réttur þeirra hefur orðið fyrir ríkum vestrænum áhrifum, einkum á þessari öld, og einkenni þau sem lýst verður hér á eftir eru á undanhaldi. Hér er aðeins tóm til að lýsa megineinkennum þessara réttarkerfa mjög almennum orðum. Ef þau eru öll borin saman við það sem nefnt er vestrænn réttur hér að framan felst megineinkennið í því að skilin milli réttarreglna í vestrænum skilningi annars vegar og siðferðis- og trúarreglna hins vegar eru óljós. Réttur austurlanda fjær er t.a.m. talinn einkennast mjög af því að áhersla er lögð á að setja deilur manna niður friðsamlega án skírskotunar til lagareglna og afskipta dómstóla. Megineinkenni islamsks réttar er hins vegar fólgið í því að rétturinn er talinn bein opinberun á vilja Allah. Skuldbindingargildi hans felst í því, en er ekki rakið til veraldlegra yfirvalda. Afleiðingar þessa viðhorfs eru margbreytilegar, m.a. þær að skilin milli réttarreglna og trúarreglna verða mjög óglögg. Af þessum sökum taka lögin í skilningi Múslíma ekki aðeins til þeirra sviða mannlífsins sem varða samskipti manna við hið opinbera og samskipti þeirra innbyrðis, heldur beinlínis til allra þátta mannlegs lífs. I samræmi við þetta mæla lögin m.a. fyrir um það með hvaða hætti menn skuli rækja trú sína. Mikilvægasta réttarheimildin í hugum Múslíma er Kóraninn. Réttur Hindúa er sérstakt réttarkerfi sem þróast hefur meðal þeirra sem aðhyllast Hindúasið. í Hindúasið er það viðhorf áberandi að menn séu fæddir inn í ákveðna stétt samfélagsins og að þar beri þeim að halda sig hvort sem þeim líkar betur eða verr. Hins vegar hefur breytni þeirra í þessu lífi áhrif á það hvort þeim verður búin betri vist meðal æðri stéttar í því næsta. Áberandi einkenni á rétti Hindúa samanborið við önnur réttarkerfi eru margar, mismunandi og flóknar reglur eftir því hvaða stétt þjóðfélagsins menn tilheyra. Þá stemma reglur þessar stigu við því að stéttaskiptingin riðlist, m.a. með því að takmarka hjúskap karla og kvenna sem ekki tilheyra sömu stétt og fleira af því tagi. Slíkar reglur sem byggj a á hugmyndum Hindúa um stéttaskiptingu hafa þó þokað mjög á síðustu áratugum vegna vestrænna áhrifa? 8. SKIPTING VESTRÆNS RÉTTAR Hin hefðbundna skipting vestræns réttar er sem hér segir: Meginlandsréttur, Common law og sósíalískur réttur. Eins og fyrr er rakið telja sumir að ekki beri að líta á meginlandsréttinn sem sérstakt réttarkerfi, heldur sé nákvæmara að 21 Sjá stutt yfirlit um þessi réttarkerfi í Zweigert og Kötz 1971, s. 419 og áfram. 22 Zweigert og Kötz 1971, s. 386-388. 215
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.