Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 11

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 11
4.2 Samanburðurinn Hér að framan er lýst með hvaða hætti rétt er að velja þær lagareglur sem bornar eru saman. Niðurstaðan er sú að velja beri til samanburðar reglur sem hafa sama hlutverki að gegna óháð því hvaða heiti lögfræðingar í hverju landi hafa valið þeim. Þegar reglurnar eru bornar saman dugar þó skammt að bera eingöngu saman sjálfan lagatextann. í fyrsta lagi má nefna að með því fæst engin mynd af þeim sviðum réttarins sem eru meira eða minna ólögfest. I öðru lagi er horft framhjá mikilvægi úrlausna dómstóla og stjórnvalda við túlkun og framkvæmd laganna. Þannig geta fjölmörg atriði sem ekki koma fram í sjálfum lagatextanum haft verulega þýðingu við slíkan samanburð. a) Réttarframkvæmd Það er afar mikilvægt að skoða vel með hvaða hætti lagareglur hafa verið túlkaðar í réttarframkvæmdinni. Til að skýra þetta nánar skal hér tekið dæmi." í landinu A gildir sú regla að framleiðandi vöru ber hlutlæga bótaábyrgð á hættueiginleikum hennar. Hann getur þó losnað undan ábyrgð ef hann sýnir fram á að tækniþekking hafi verið svo takmörkuð þegar varan var hönnuð og framleidd, að ekki var unnt að sjá hættuna fyrir og afstýra henni. í landinu B gildir hins vegar sakarlíkindaregla, þannig að framleiðandinn ber ábyrgðina nema honum takist að sanna að hann eigi ekki sök á. Efnislega er nokkur munur á þessum reglum og svo kann að virðast sem tekið sé á þessum málum með all ólíkum hætti í þessum tveimur löndum. Samanburðurinn á réttarframkvæmd- inni kann hins vegar að leiða í ljós að munurinn er lítill sem enginn þegar allt kemur til alls, t.d. vegna þess að í landinu B gera dómstólarnir mjög strangar kröfur til sönnunar um að sök sé ekki fyrir hendi, þannig að ábyrgðin er nánast hlutlæg, enda þótt ekki sé svo í orði kveðnu. Á sama hátt getur samanburður leitt í ljós að þó að lagareglurnar séu nákvæmlega eins, sé nokkur munur á framkvæmdinni. í þessu sambandi má einnig nefna að einstaka settar lagareglur geta gefið alranga mynd af veruleikanum, t.d. reglur sem hið opinbera lætur viðgangast að brotnar séu og á jafnvel sjálft þátt í að brjóta. Dæmi um íslenska löggjöf af þessu tagi eru 1. nr. 54/1925 um mannanöfn. Samkvæmt 2. gr. laganna má enginn maður taka sér ættarnafn eftir gildistöku þeirra. í framkvæmd hefur þessu banni ekki verið fylgt. b) Mismunandi réttarkerfi Réttarskipun ríkja getur verið all frábrugðin og byggst á ólíkri lagahugsun. Vandamálin sem við er að glíma geta þó verið þau sömu. Hér má t.d. nefna að í Common law ríkjum er rétturinn í mun ríkara mæli byggður á dómafordæmum, 11 Sjá t.d. Lando s. 91-92. 209
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.