Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 25

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 25
hans verði að vissu í hugum manna. Geta slík tilvik því verið jafn varasöm trausti dómstólanna og þau þar sem yfirgnæfandi líkur eru á að dómari verði hlutdræg- ur. Breytir þar litlu þótt dómari hafi komist að lögfræðilega réttri niðurstöðu í málinu ef aðferðin og aðstœður við úrlausn deilumálsins eru með þeim hætti að þær dragi úr tiltrú á óhlutdrægni hans. Niðurstaðan hefur því verið sú að það verði ekki talið nægjanlegt í réttarríki að tryggja að komist hafi verið að réttri niðurstöðu í málinu, heldur verði almenningur að geta treyst því að svo hafi verið.8 Ef trú skortir á það að komist hafi verið að málefnalegri niðurstöðu ríkir óöryggi og því í raun skert réttaröryggi. Því er nauðsynlegt að koma í veg fyrir það að dómari dæmi í máli ef hann er tengdur því eða aðilum þess með þeim hætti að út frá sjónarhóli hlutlauss þriðja manns megi draga óhlutdrægni dómarans í efa með skynsamlegum hætti. Þetta sjónarmið verður hér eftir nefnt traustssjónarmiðið.9 4. ÖNNUR LÖGSKÝRINGARSJÓNARMIÐ VIÐ TÚLKUN 7. TL. 36. GR. EML. Þau sjónarmið sem hér var lýst að framan við umfjöllun á markmiðum reglnanna eru aðalsjónarmið við skýringu hinna sérstöku hæfisreglna. Ýmis önnur sjónarmið hafa verið sett fram til fyllingar-þeim í réttarfari og stjórnsýslu- rétti. Skal hér aðeins nokkurra getið sem komið geta til skoðunar við athugun á framangreindum dómi. 4.1 Hagsmunir þeir er vaida vanhæfi 4.1.1 Hagsmunir dómarans Svo dómari teljist vanhæfur verður hann að hafa hagsmuni af úrlausn málsins. Hér koma einnig til skoðunar hagsmunir venslamanna og annarra þeirra10 sem eru í slíkum tengslum við dómarann, að haft geti áhrif á hann. Hagsmunir í þessu sambandi eru skýrðir mjög rúmt og koma hér til skoðunar beinir sem óbeinir hagsmunir. Yfirleitt er um að ræða fyrirliggjandi hagsmuni en telja má að þetta nái einnig til væntanlegra hagsmuna ef þeir eru fyrirsjáanlegir og raunhæfir. Hagsmunirnir geta verið efnislegir, s.s. fjárhagslegir, eða huglæg- ir, s.s. siðferðileg afstaða. 8 Larenz. Karl: Richtiges Recht, 165-169. 9 I dönsku nefnt tillidshensynet, sbr. t.d. Rðnsholdt, S.: Om dommeres specielle habilibet. 10 Hér má t.d. nefna þegar aðili máls er starfsfélagi dómara eða dómari er í beinum starfstengslum við annan aðilann. Sjáhért.d. HRD 1959530ogHRD 1959 657 þar sem starfstengsl voru slíkað þau þóttu ekki valda vanhæfi. Sjá hins vegar gagnstæða niðurstöðu í UfR. 1957 688. 223

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.