Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Qupperneq 27

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Qupperneq 27
4.1.5 Mat á því hvort tengsl dómara við tiltekna hagsmuni af úrlausn máls telst vanhæfisástæða Vandamálið í þessum efnum er það hversu mikill vafi þurfi að vera á því að viss tengsl dómara við tiltekna hagsmuni af úrlausn máls geti haft ómálefnaleg áhrif á niðurstöðu í máli þannig að rétt sé að dómarinn víki sæti. Þurfa að vera til staðar veruleg líkindi, skynsamlegur vafi eða nægir vafi eingöngu?16 Sjónarmiðin sem hér koma til álita eru, annars vegar, að gengið sé það langt að komið sé vel til móts við öryggis- og traustssjónarmiðin og þar með stuðlað að málefnalegri niðurstöðu og trausti almennings á dómstólunum, en hins vegar ekki gengið það langt, að vikið sé sæti í málum, þar sem hverfandi lítil eða engin hætta er á því að dómari verði hlutdrægur, með þeim afleiðingum að skilvirkni dómstóla minnki og kostnaður vegna þeirra aukist. Það hefur yfirleitt verið gert ráð fyrir því að ekki væri nægjanlegt að aðilar vantreystu dómara,17 heldur yrðu til grundvallar þessum vafa um óhlutdrægni að liggja einhverjar hlutlægar ástæður sem væru til þess fallnar að vekja vafa á skynsamlegan hátt.18 Því er almennt gerð sú krafa, að frá sjónarhóli hlutlauss þriðja manns séu aðstæður slíkar að draga megi óhlutdrægni dómarans í efa með skynsamlegum hætti.1'1 Undantekning er þó frá framangreindri reglu. Vikning á huglægum grundvelli er heimil í þeim tilvikum þar sem dómara finnst sjálfum hann ekki geta litið óhlutdrægt á málavöxtu.20 Þegar hættan á því að dómari sé vanhæfur er metin út frá traustssjónarmiðun- um er ekki litið til persónuleika dómara, hvort hann sé ólíklegur til þess að láta tiltekin tengsl við hagsmuni af úrlausn máls hafa áhrif á sig.21 Þetta var gert áður fyrr samkvæmt öryggissjónarmiðunum og var þá aðallega litið á horf dómara við 16 Benda má á, að í einum enskum dómi var gengið svo langt að telja dómara rétt að víkja ef „not necessarily reasonable people“ drægi óhlutdrægni dómarans í efa sbr. Eckersley and others v. Mersey Docks and Harbour board (1894)2 Q.B. 667. Dómarsem fallið hafa eftir það íenskum rétti, hafa þó ekki gengið svo langt og er oftast vitnað í gamlan dóm þar sem krafist var að fyrir lægi „a real possibility of bias“, sbr. R. v. Rand and others (1865-66) L.R. 1 Q.B. 230. 17 Sjá t.d. HRD 1929 189; HRD 1929 1288; HRD 1976 735; Hurwitz: Tvistemaal, 45 og UfR. 1921 917. 18 í eftirtöldum dómum voru aðilar máls ekki taldir hafa réttmæta ástæðu til að draga óhlutdrægni dómarans í efa. HRD 1976 90. Dómari vísaði aðila máls úr þinghaldi svo stöðva mætti ræðuhöld hans utan dagskrár. HRD 1939 129. Dómari hafði áður dæmt refsimál á hendur aðila máls. HRD 1958 466. Dómari hafði áður dæmt í sams konar máli áður. 19 Zivilprozessordnung, 122. 20 I athugasemd við 36. gr. í greinargerð frumvarps þess er varð að eml. segir m.a.: „Ef engin ytri, (objektiv) atriði liggja fyrir, þá verður það samviskusök dómarans, hvort hann víkur eða ekki, t.d. kali til aðilja, er ekki hefir opinberlega komið fram. Og verða litlar leiðbeiningar um þau efni gefnar.“ f athugasemdum við 37. gr. segir: „Dómari getur alltaf vikið af sjálfsdáðum (ex officio), ef honum virðast ástæður til þess vera fyrir hendi...“, Alþt. 1935-A, 941. Sjá einnig ummæli hjá Gomard: Civilprocessen, 582. 21 Andersen. Poul: Dansk Forvaltningsret, 446. 225
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.