Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 41

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Blaðsíða 41
4) Fram að 1. júlí 1992, er aðskilnaður dómsvalds og framkvæmdavalds kemur til framkvæmda, er ekki ólíklegt að upp komi spurningar um hæfi dómara á ýmsum sviðum, þar sem hann hefur áður haft afskipti af máli. Sem dæmi, þá má velta því fyrir sér hvort þeir bæjarfógetar og sýslumenn utan Reykjavíkur, sem einnig eru innheimtumenn fyrir ríkissjóð, teljist hæfir til þess að gera lögtak fyrir þeim opinberu gjöldum sem þeir sjá um innheimtu á, en í slíkum tilvikum koma þeir einnig fram í málinu sem fyrirsvarsmenn gerðarbeið- anda. Ekki er að sjá að á þetta hafi reynt fyrir Hæstarétti. Hér er fyrst að athuga að frá því er HRD 1973 373 gekk, verður ekki betur séð en gengið hafi verið út frá því sem meginreglu, eins og áður var minnst á,5'* að dómarar væru taldir vanhæfir þar sem þeir væru fyrirsvarsmenn aðila í máli. Hér má einnig minna á fógetaréttarmál þar sem fógeti hefur verið talinn vanhæfur í slíkum tilvikum. HRD 1951 355 þar sem fógeti var umboðsmaður þjóðjarðar og HRD 1967 810 þar sem fógeti var fyrirsvarsmaður fyrirtækis sem var í sömu stöðu og gerðarþoli. Loks má geta þess að í almennum einkamálum hefur dómari máls verið talinn vanhæfur, þar sem hann hefur jafnframt verið stefnandi máls sem fyrirsvarsmaður ríkissjóðs við innheimtu skatta, sjá HRD 1961 446 og HRD 1967 47.60 Ef litið er til framangreindra dóma virðist liggja í augum uppi að fógeti hljóti að teljast vanhæfur þegar hann er jafnframt fyrirsvarsmaður gerðarbeiðanda. Þegar betur er að gáð kemur hins vegar í ljós að í framkvæmd virðist hafa verið gengið út frá gagnstæðri niðurstöðu á grundvelli 2. ml. 1. tl. 36. gr. eml. svo og þess Iögskýringarsjónarmiðs sem gerð var grein fyrir í kafla 5.1. Með þá staðreynd í huga að hér virðist byggt á sömu sjónarmiðum og Hæstiréttur hafnar í HRD 9. janúar 1990, vaknar sú spurning hvort ekki sé hægt að draga þá ályktun af dóminum að fógeti hljóti eftirleiðis að teljast vanhæfur við slíkar aðstæður. Ef kaflar eru 7.1-7.6 eru skoðaðir kemur í ljós að flest sömu rök eiga hér við og liggja til grundvallar HRD 9. janúar 1990, nema hvað hér við bcetist ein af elstu og áhrifamestu vanhæfisástæðunum að dómari kemur einnigfram í málinu sem fyrirsvarsmaður annars aðilans. Með tilliti til þessa, dóma þeirra sem hér að framan var getið, tilgangs hæfisreglnanna svo og lögskýringarsjónarmiða sem getið var í 4. kafla, verður að telja Ijóst að draga megi óhlutdrægni fógeta í efa með skynsamlegum rökum, þegar hann er jafnframt gerðarbeiðandi, sem innheimtumaður ríkissjóðs. 59 Sjá hér kafla 5.2. 60 Þess má geta að á árunum 1977-1986 viku t.d. héraðsdómarar í 7 málum þar sem þeir voru fyrirsvarsmenn ríkissjóðs við innheimtu opinberra gjalda, Páll Hreinsson: Setudómarar, 57. 239
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.