Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Page 54
Þær leiðir, sem nefndar hafa verið til úrbóta, eru einkum þær að kjósa
sérstakan varaforseta í almennum kosningum eða fela einhverjum þeirra
þriggja, sem nú taka þátt í meðferð forsetavalds, að vera sérstakur staðgengill
forseta íslands. Þá gæti komið til greina að fela þetta hlutverk einhverjum
ráðherranna, öðrum en forsætisráðherra, og skipta því þá milli þeirra með
ákveðnu millibili. Slíkt fyrirkomulag ætti sér nokkra fyrirmynd í Sviss, þar sem
sérstakur forseti er ekki kosinn, en ráðherrar fara til skiptis með verkefni hans.
Með hliðsjón af eðli embættis forseta íslands og umfangi starfa hans, verður
að telja óheppilegt að kjósa hér sérstakan varaforseta, sem ekki gegndi öðrum
störfum. Það væri í senn of kostnaðarsamt og ekki fyrir séð, að slíkur maður
hefði að jafnaði næg og verðug verkefni. Þá kemur tæpast til greina, að vel geti
farið á því, að forsætisráðherra ræki þennan starfa hér á landi, þótt slíkt kunni ef
til vill að geta gengið annars staðar, eins og raunin er t.d í Finnlandi, en þar er
hlutverk forseta í stjórnkerfinu með öðrum hætti en hér er. Staða forsætisráð-
herra er alltof pólitísk og verk hans að jafnaði of umdeild í návígi stjórnmálanna
til þess, að það geti með sæmilegu móti fallið að hugmyndum manna um
hlutleysi og virðingu forsetaembættisins. Þá gæti sú tilhögun valdið tortryggni og
skapað erfiðleika við stjórnarmyndanir, þar sem hann hefði að jafnaði sjálfur
sérstakra pólitískra hagsmuna að gæta. Hið sama má að verulegu leyti segja um
þá hugmynd, að aðrir ráðherrar komi fram sem handhafar forsetavalds.
Það eru hins vegar raunhæfir kostir, að annaðhvort forseti Hæstaréttar eða
forseti sameinaðs Alþingis verði varaforseti. í nýlegri blaðagrein taldi Haraldur
Ólafsson, dósent, það vera augljóst, að forseti sameinaðs Alþingis ætti að gegna
þessu starfi og sagði m.a.: „Hann er beinn arftaki lögsögumannsins á þjóðveldis-
tíma og verkstjóri æðstu stofnunar lýðveldisins. Hann er hinn eðlilegi og rétti
staðgengill forseta íslands, ef nauðsyn ber til ... Sú skipan að gera forseta
sameinaðs þings að staðgengli forseta lýðveldisins mundi sjálfkrafa auka veg
þingsins. Þar með væri viðurkennt, að það er Alþingi, sem er ofar ríkisstjórn og
dómstólum, vegna þess að þar eru sett þau lög og reglur, sem dómstólar og
ríkisstjórnir verða að fylgja í störfum sínum.“IJ
Þótt ýmislegt kunni að vísu að mæla með því, að forseti sameinaðs Alþingis
verði staðgengill forseta íslands, er rökstuðningur af þessu tagi fjarstæðukennd-
ur. Það eru engin þau sögulegu tengsl rnilli lögsögumanns á þjóðveldistíma og
embættis forseta íslands, sem geri æðsta embættismann Alþingis í dag öðrum
fremur til þess fallinn að vera varaforseti. Þá er það grundvallarmisskilningur,
að Alþingi sé í sjálfu sér ofar ríkisstjórn og dómstólum. Þótt Alþingi setji landinu
að vísu lög og stjórnarskrá öllum til eftirbreytni, eftir því sem verða má, byggist
sú skipan á greiningu ríkisvaldsins í löggjafarvald, framkvæmdarvald og
14 Haraldur Ólafsson: Handhafar og staðgenglar.
252