Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Page 70

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Page 70
FYLGISKJAL II ÞING ALÞJÓÐASAMBANDS DÓMARA 1989 Þing Alþjóðasambands dómara var haldið í Macao dagana 23.-27. október 1989. Umræðuefnið á þinginu var „Staða og hlutverk dómarans í nútímaþjóð- félagi“. Fjárhagsaðstoð portúgölsku ríkisstjórnarinnar og mikil undirbúnings- vinna portúgalskra dómara í Macao gerðu mögulegt að halda þetta þing. Um 150 manns frá 40 löndum sóttu þingið. Flestir þátttakendur voru dómarar, en auk þeirra voru nokkrir þátttakenda lögfræðingar og lögmenn. íslensku þátttakendurnir voru Friðgeir Björnsson yfirborgardómari, Harald- ur Henrýsson hæstaréttardómari og Valtýr Sigurðsson borgarfógeti. Umræðum á ráðstefnunni var skipt í þrjá þætti sem ræddir voru í jafnmörgum nefndum. Þættirnir voru þessir: a. Ábyrgð dómarans. Hlutverk hans og staða gagnvart öðrum valdhöfum í ríkiskerfinu og þjóðfélaginu. Sjálfstæði dómsvaldsins og áreiðanleiki þess gagnvart ríki og einstaklingum. (fyrsta nefnd) b. Dómarinn og samstarf hans við aðra sem starfa á sviði lögfræði: lögfræð- inga, lagaprófessora, sérfræðinga og starfsmenn ríkisins. (önnur nefnd) c. Dómarinn og nokkur þýðingarmikil atriði í nútíma opinberu réttarfari sérstaklega með tilliti til gæsluvarðhalds og annars sem í þess stað gæti komið. í öllum nefndunum voru ályktanir samþykktar. Eftirtalin efni voru valin til umræðu á þingi alþjóðasambandsins 1990: a. Hvernig á að vernda dómara fyrir utanaðkomandi pólitískum, fjárhagsleg- um og félagslegum áhrifum og ofbeldi, með sérstöku tilliti til þeirrar virðingar sem dómstörf og þjófélagsleg staða dómara eiga að njóta? (fyrsta nefnd) b. Fullnusta dóma. (önnur nefnd) c. Hraðari meðferð opinberra mála: meðferðin nú og framtíðarmöguleikar. (þriðja nefnd) Samþykkt var umsókn Dómarafélags Kanada um aðild að Alþjóðasambandi dómara. Kanadískir dómarar höfðu átt áheyrnarfulltrúa á dómaraþingunum í Dyflinni og Berlín. Á hinum eiginlega aðalfundi Alþjóðasambands dómara var samþykkt að breyta lögum samtakanna þannig að við 12. gr. þeirra bættist eftirfarandi: „Svæðissamstarf. Stjórnin getur tilnefnt einn af varaforsetunum til þess að taka þátt í samstarfi við alþjóðsamtök sem komið verður á fót á ákveðnum svæðum og til þess að samræma sérstök áhugamál aðildarfélaga á þessum svæðum. Varaforsetinn skal starfa að þessum málum með forsetanum og skrifstofu samtakanna. Skýrslu um þessa starfsemi á að gefa fulltrúaráðinu (Central Counsil).“ 4. Finnsku þátttakendurnir skýrðu frá því að Dómarafélag Finnlands byði til 268

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.