Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 8

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 8
og galla á fjölræði. Né heldur hafa þeir neitt annað orð um sama efni. Engu að síður virðist vera greinileg þróun í átt til fjölræðis að undanförnu á íslandi, til dæmis í átt til sjálfstæðis fjölmiðla. I fjölmiðlun á Islandi, og á ýmsum öðrum sviðum líka, hefur flokkaræði verið að víkja fyrir fjölræði. Annað dæmi af allt öðru tæi um tilhneigingu til fjölræðis, og þar með valddreifíngar, á íslandi eru ráðagerðir stjórnvalda um að flytja skólahald frá ríki til sveitarfélaga, án þess ég viti mikið um hvernig þær ráðagerðir eru hugsaðar. En enginn minnist á fjölræði. A hinn bóginn er annað orð á hvers manns vörum, og hefur kveikt heitar ástríður hjá alþingismönnum, blaðamönnum og almenningi. Það er „einkavæðing". Nú er einkavæðing - sala á opinberum fyrirtækjum til einkaaðila - hugsanlega eitt tækið til að stuðla að tjölræði. En bara hugsanlega. Það fer meðal annars eftir því hverjir kaupa. Svo má ekki gleyma því að einkarekstur og einkaeignarréttur virðast alls ekki vera ófrávíkjanlegar forsendur fjölræðis. Það virðist vel hægt að hafa mjög sjálfstætt Ríkisútvarp - eins og brezka útvarpið - og mjög sjálfstæða háskóla þó svo að þetta séu opinberar stofnanir. Engum dettur í hug að einkavæða Hæstarétt til að tryggja sjálfstæði hans. Og Morgunblaðinu gekk ljómandi vel að vera ósjálfstætt í skoðunum í áratugi þótt það væri í einkaeign. Það var eins og hvert annað tlokksblað en er það naumast lengur. Svo að fjölræði og einkavæðing eru sitt hvað. Nú virðist mér blasa við að fjöl- ræðið sé margfalt mikilsverðara mál en nokkur einkavæðing að henni þó ólast- aðri. Og þegar einkavæðingin er varin eða boðuð - einkavæðing Ríkisútvarps- ins til dæmis - þá er það oftar en ekki gert út frá fjölræðissjónarmiðum, og stundum öðrurn lýðræðissjónarmiðum, án þess þó að fjölræðið sem slíkt sé nokkurn tíma nefnt á nafn. Og þetta finnst mér vera ofurlítil gáta. Hvers vegna erum við svo lágvær um fjölræði, sem þó er þögult og bítandi allt í kringum okkur, og svo hávær um einkavæðingu? Það ætti að vera öfugt. Kannski ég megi nefna enn eitt dæmi til að varpa ljósi á fjölræði. Dæmið er af hugtaki sem Evrópubandalagið hefur gert frægt á allra síðustu árum. Á út- lendum málum heitir það „súbsídíarítet". Það er fróðlegt að hugsa til þess, sem Michael Dummett rökfræðingur í Oxford fræddi mig á, að þetta sérkennilega orð „súbsídíarítet“ er ættað úr þýzkri þýðingu á næstum sjötíu ára gömlu páfa- bréfi eftir Píus páfa XI. Þess má geta að páfabréf eru að jafnaði afbragðsrit fyrir skýra hugsun og glæsilega framsetningu. Þetta páfabréf skrifaði Píus XI gegn fasistastjórninni á Ítalíu þegar hún bjóst til að safna sem mestum völdum í landinu í hendur ríkisstjómarinnar í Róm. Þar setti páfi fram þá reglu að allt vald skyldi falið lægstu einingu í landinu sem með það gæti farið. Ef hreppsnefnd gæti farið með valdið þá skyldi henni falið það. Og þessa reglu hefur nú Evrópubandalagið - að minnsta kosti í orði kveðnu - gert að sinni. Að minnsta kosti nota þeir orðið í Brussel. Eg veit ekki nema það standi í sáttmálanum frá Maastricht. En þar í sveitum mun vera þó nokkur ágreiningur um hvernig eigi að skilja páfaregluna og beita henni. Ég hef heyrt og séð brezku stjórnina sakaða um að beita henni í Brussel en brjóta hana misk- unnarlaust í London, til dæmis bæði á sveitarstjórnum og háskólum. 194

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.