Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 25

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 25
... hefur ekki sýnt fram á annað en það hafi verið afgreiðslumaður m/s Esju á Þingeyri og yfirmenn skipsins, sem tóku ákvörðun um að flytja flatningsvélina á þilfari. Þeir báru fulla stjórnunarábyrgð á þessari ráðstöfun gagnvart áfrýjanda [Skipaútgerðinni]. Meta verður það svo, að þetta hafi verið gert í umboði áfrýjanda sem farmflytjanda. Fram er komið, að 2. stýrimaður hafði verkstjóm, þegar skipið var sjóbúið. Hefur hann borið að hafa aðeins litið lauslega yfir umbúnað vélarinnar. Ekki hefur verið leitt í ljós, að hásetar þeir, sem gengu frá vélinni, hafi breytt gegn fyrirmælum yfirmanna eða því, er þeir höfðu látið viðgangast um búnað farms. Með venjulegri aðgæslu hlutu stjórnendur skipsins að gera sér greinjyrir, að tjón gœti hœglega hlotist af umbúnaði vélarinnar. Þetta aðgæsluleysi þeirra var stórfellt. Samkvæmt 6. mgr. 70. gr. laga nr. 34/1985 getur áfrýjandi því ekki borið fyrir sig ábyrgðartakmörkun samkvæmt öðmm ákvæðum greinarinnar.31 Niðurstaða dómsins er skýr. Áhersla er lögð á að það séu yfirmenn skipsins sem gerist sekir um stórfelld afglöp og af því leiði að farmflytjandinn geti ekki takmarkað ábyrgð sína. Þótt afgreiðslumaðurinn sé nefndur þá er ekki byggt á því að það haft verið gáleysi að flytja vélina á þilfari. Ekki verður um gáleysis- matið hér sagt annað en að það sé tiltölulega strangt. Vafasamt er að gáleysið sé stórfellt í venjulegum skilningi þess orðs, en alls ekki eru uppfyllt hin ströngu skilyrði 6. tl. 70. gr. Ef farið er nákvæmlega í orðalagið segir í lagatextanum „tjón mundi senni- lega hljótast", en Hæstiréttur fullyrðir í dóminum ekki meira en að tjón gæti hæglega hlotist. Á þessu er mikill munur. Enn meiri munur er síðan á orðalagi dómsins og texta Haag-Visby reglnanna. Hin hliðin á málinu er síðan sú að yfirmenn skipsins eru hér taldir vera Skipa- útgerðin sjálf. Það er niðurstaða sem kemur á óvart, enda verður að segja að sú niðurstaða er ekki í samræmi við þær lagareglur er Hæstiréttur vitnar til. Rök fyrir þessari niðurstöðu eru heldur ekki færð fram. Síðari dómurinn er H 1993 1960. Samskip hf. höfðu flutt til landsins frá Rotterdam einn lítinn pakka, 57 kíló að þyngd, Hann var settur í vörugeymslu og geymdur þar nokkuð lengi. I upphafi var merkt í skrá hvar hann væri niður- kominn í vörugeymslunni, en síðar var hann fluttur til án þess að skráð væri hvert. Pakkinn fannst ekki aftur. Hæstiréttur segir orðrétt: Hér var um tiltölulega lítinn pakka að ræða í stórri vörugeymslu. Verður að telja það stórfellt gáleysi að endurmerkja ekki vöruna, þegar hún var flutt til, og mátti stjórn- endum vörugeymslunnar vera ljóst, að við svo búið væri hætta á, að varan týndist. Samkvæmt 6. mgr. 70. gr. siglingalaga nr. 34/1985 getur áfrýjandi því ekki borið fyrir sig ábyrgðartakmörkun samkvæmt 2. mgr. 70. gr. 31 Skáletrun greinarhöfundar. 211

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.