Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Side 68
4. REGLUGERÐ LAGADEILDAR
Með reglugerð nr. 118, 5. nóvember 1996, voru gerðar nokkrar breytingar á
reglum um próf í lagadeild. í þeirn felst í stuttu máli þetta: 1) Stúdent er heimilt
að hefja nám í 2., 3. eða 4. hluta, enda þótt hann eigi ólokið prófi í einni
námsgrein næsta hluta á undan. Stúdent er þó ekki heimilt að hefja nám í 2.
hluta, nema hann hafi áður staðist próf í almennri lögfræði ásamt ágripi af
réttarsögu. Prófi í greininni, sem ólokið er, skal stúdent ljúka, áður en hann
hefur nám í næsta hluta þar á eftir. 2) Felld er niður sú regla, sem gilt hefur, að
stúdent sé skylt að þreyta próf í öllum greinum misseris, eða eftir atvikum árs,
á sama próftímabili. Sérreglur gilda að þessu leyti um próf í almennri lögfræði
og heimspekilegum forspjallsvísindum. 3) Stúdent, sem hefur lokið prófi í
almennri lögfræði, er ekki heimilt að gangast oftar en fjórum sinnum undir
sama próf. Felld er niður sú regla, að stúdent haldi einkunnum í tilteknum
prófurn við endurinnritun í lagadeild. 4) Endurtekningarpróf í almennri lög-
fræði ásamt ágripi af réttarsögu og heimspekilegum forspjallsvísindum flytjast
frá próftímabili að hausti fram á próftímabil að vori. 5) Minniháttar breytingar
eru gerðar á því, á hvaða stigi námsins stúdent skal velja kjörgreinar, ritgerðar-
efni og umsjónarkennara í 4. hluta náms.
Reglunr þessurn verður beitt um alla stúdenta, sem innrita sig til náms við
lagadeild að sumri 1997 eða síðar. Eldri reglur gilda um stúdenta, sem hafa
staðist próf í almennri lögfræði ásamt ágripi af réttarsögu haustið 1996 eða fyrr.
Lagadeild getur þó heimilað að stúdent, sem eldri reglur hefðu annars gilt um,
leggi stund á nám og gangist undir próf eftir nýju reglunum. Nær allir stúdentar
á 1., 2. og 3. hluta náms skólaárið 1996-1997 hafa sett fram slíka ósk.
5. ALÞJÓÐASAMSTARF - STÚDENTA- OG KENNARASKIPTI
Stöðugt færist í vöxt að stúdentar leysi hluta af námi sínu af hendi við erlenda
háskóla, samkvæmt heimild þess efnis í reglugerð. Þannig lögðu tólf íslenskir
laganemar stund á nám í Evrópu á árinu 1996, þar af 6 á Norðurlöndunum. Einn
stúdent var við nám í Ohio í Bandaríkjunum, en í júlí 1996 var gerður
samningur um stúdentaskipti á milli lagadeildar og Ohio Northern University.
Frá haustmisseri 1995 hefur lagadeild boðið upp á námskeið fyrir erlenda
stúdenta á Nordplus- og Erasmus-styrkjakerfunum. Námskeiðið svarar til eins
misseris náms og er fólgið í fjórum kennslugreinum. Þessar greinar eru
evrópuréttur, hafréttur, refsiréttur og réttarsaga. Öll kennsla fer fram á ensku.
Þrír erlendir stúdentar sóttu námskeiðið á haustmisseri 1996.
I febrúar 1996 stóð lagadeild fyrir tveggja vikna námskeiði um „bandarískt
lagamál með áherslu á grundvallarþætti bandarísks dóms- og lagakerfis".
Kennsla fór fram á virkum dögum, tvo tíma í senn. Þátttakendur á námskeiðinu
voru bæði laganemar og lögmenn. Kennari var Eva Jacobsen, lektor við Arósa-
háskóla, en ferð hennar hingað til lands var styrkt af Nordplus.
124