Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 23
reglugerðardraganna. Eftir 1. janúar 1999 verður ECU eingöngu yfirheiti á
hinum sameiginlega gjaldmiðli.
Þar sem ECU er samsett af föstum gengisfjárhæðum aðildarríkja með
ákveðnu markaðsverðgildi verður daglegt markaðsverðgildi (og vextir) reiknað
og skráð fyrir ECU sem slíkt. ECU er í nokkrum mæli notað í einkageiranum
til að ákveða umfang fjárskuldbindinga, einkum til að vinna gegn gengisáhættu
og í þeim tilgangi að ná fram gengistryggingu krafna og skulda.
ECU hefur í auknum mæli verið notað til að tilgreina fjárhæðir í ýmsum
tilvikum. Því var talið æskilegt að fastsetja innan Evrópuréttarins slíkar
tilvísanir til ECU í lagaákvæðum og löggerningum.
í 2. gr. (1) reglugerðarinnar er ákvæði um að tilvísun til ECU sem opinberrar
reiknieiningar innan Evrópubandalagsins (opinbert ECU22) í lagaákvæðum og
löggemingum skuli túlka sem tilvísun til evró í hlutfallinu 1:1, þ.e. að „eitt
ECU“ sé jafnt „einu evrói“. Það leiðir af 2. lið 4. mgr. 109. gr. L Rs. (2. lið 4.
mgr. 123. gr. Rs.) að ECU er jafngilt evrói í opinberri notkun, en ákvæðið mælir
fyrir um að ákvörðunin um gengi milli gjaldmiðla einstakra ríkja og ECU skuli
ekki breyta gildi ECU útávið. Evró er aðeins heiti sameiginlegu myntarinnar
ECU og getur því ekki haft annað gildi. Því verður gildi evrósins að svara til
gildis ECU við gildistöku evrósins.
Ákvæði 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar er ennfremur byggt á líkindareglu
þess efnis að tilvísanir til „ECU“ skuli túlka sem tilvísanir til „opinbers
ECU“, en afsanna má líkindaregluna og taka skal tillit til vilja samningsaðila.23
í reynd leiðir ákvæðið til þess að tilvísanir til ECU í samningum, sem mæla
fyrir um greiðslu eftir 1. janúar 1999, eða greiðsla fer fram eftir 1. janúar 1999,
verða túlkaðar sem tilvísanir til evró.24
7. GENGI OG NÁMUNDUN
Samkvæmt 4. gr. (1) til (3) reglugerðarinnar skal reiknigengi evrós og
gjaldmiðils ríkis ákveðið með sex gildum tölum (t.d. 1,96433 eða 40,5393),
ekki er heimilt að stytta eða námunda reiknigengið og aðeins eitt reiknigengi
gildir, hvort sem reiknað er frá gjaldmiðli ríkis til evrósins eða frá evróinu til
22 „Opinbert ECU“ vísar yfirleitt til ECU, eins og einingin er skilgreind í reglugerð ráðsins, og sem
notuð er af stofnunum Evrópusambandsins og milli seðlabanka aðildarríkjanna. Notkun ECU í
einkageiranum miðar yfirleitt við „opinbert ECU“, en er þó að meginstefnu til háð samningsfrelsi
(einkaréttarlegt ECU).
23 „The rebuttal is not dependent on a written agreement in the contract. It may also be deducted
from the conduct of the parties or from other factors. Nevertheless the presumption modifies to
some extent the burden of proof for the parties". Sjá European Economy. „Legal framework for the
use of the euro“, bls. 5.
24 Þar sem ECU er, eins og áður er rakið, gjaldmiðilskúrfa, sem hefur tekið breytingum, má vera
að til séu samningar þar sem telja verður að tilvísun til ECU sé tilvísun til ECU með annarri
samsetningu en þeirri sem greind er í tilskipun ráðsins nr. 3320/94. Einnig er mögulegt að samið
hafi verið um samsetningu sem kölluð er „ECU“, sbr. t.d. samninga í mörgum gjaldmiðlum. Meta
verður slíkar tilvísanir eftir aðstæðum og eftir rétti tiltekins ríkis, eftir því sem við á.
107