Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Page 16
Tilvísun 1. mgr. 17. gr. kpl. til magnsins verður að skoða nreð hliðsjón af
ákvæði 2. mgr. 43. gr. laganna senr felur það í sér að unnt er að beita reglununr
um galla þegar afhendingu er áfátt hvað magn varðar.7 Þar kemur fram að megi
ráða af atvikum að seljandi hafi lokið afhendingu af sinni hálfu, þótt umsamið
magn hafi ekki allt verið afhent, eigi reglurnar um galla við. Verulega þýðingu
getur haft að greina milli þess hvort um galla eða greiðsludrátt af hálfu seljanda
er að ræða. Ef vanefnd er skilgreind sem greiðsludráttur getur kaupandi sam-
kvæmt 22. gr. kpl. krafist efnda, riftunar, skaðabóta og haldið eftir kaupverði.
Úrbóta eða nýrrar afhendingar getur hann á hinn bóginn ekki krafist. Ef
söluhlutur er gallaður getur kaupandi á liinn bóginn samkvæmt 30. gr. kpl.
krafist úrbóta, nýrrar afhendingar, afsláttar, riftunar, skaðabóta og haldið eftir
greiðslu.
Greiðsludráttur
• efndir
• riftun
• skaðabætur
• hald á kaupverði
Galli
• úrbætur
• ný afhending
• afsláttur
• riftun
• skaðabætur
• hald á greiðslu
Með öðrum eiginleikum í E mgr. 17. gr. kpl. er t.d. átt við geymsluþol vöru.8
Það að söluhlutur hefur ekki venjulegt geymsluþol eða venjulegan endingar-
tíma getur eins og síðar verður rakið talist galli í skilningi kpl. og heimilað
kaupanda beitingu vanefndaúrræða. Sjá til athugunar H 1991 1997 (jarðýta) þar
sem lögð var á það áhersla við mat á galla að kaupandi gæti haft eðlileg afnot
af jarðýtunni með hliðsjón af aldri hennar. Dómurinn er reifaður í kafla 2.2.2.
Hvað innnpökkun varðar er ljóst að tjón sem verður á umbúðum leiðir ekki
sjálfkrafa til þess að kaupandi geti beitt gallaúrræðum ef söluhluturinn sjálfur
hefur ekki orðið fyrir neinum skemmdum. I því tilviki hefur innpökkunin
einmitt náð tilgangi sínum, þ.e. að vama því að hluturinn verði fyrir tjóni. Þetta
getur þó horft öðruvísi við þegar um hlut er að ræða sem ætlaður er til áfram-
haldandi flutnings í sömu umbúðunum. Innpökkun vöru getur einnig haft sjálf-
stæða þýðingu í öðrum samböndum. Ef það leiðir t.d. af samningi að hlut skal
pakka inn fyrir flutning, og það hefur ekki verið gert þegar kaupandi kemur til
að sækja hann, er um galla að ræða í skilningi 17. gr. kpl. Þá getur innpökkun
stundum haft sjálfstæða þýðingu fyrir kaupanda sem hyggst endurselja sölu-
hlut. Þetta á við um gjafavörur, t.d. ýmiss konar skrautvörur, en einmitt þar
hefur innpökkunin sjálf mikla þýðingu við markaðssetningu.9
7 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 833.
8 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 833.
9 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 833.
200