Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Page 18
stigum, heldur bæri að miða við stöðu þeirra á afhendingardegi. Um kaup hluta-
bréfa sjá dóm Hæstaréttar frá 13. nóvember 2003 í málinu nr. 312/2003 (Frjáls
fjölmiðlun). Þar lagði Hæstiréttur áherslu á að það hafi verið forsenda og
ákvörðunarástæða kaupandans við hlutabréfakaup að verðmæti umræddra
hlutabréfa svaraði nokkum veginn til þess verðs sem fyrirsvarsmaður félagsins
tiltók og kaupandinn taldi sig mega vænta af orðum hans. Osannað væri að
kaupandinn hefði verið reiðubúinn til að gjalda fyrir hlutabréfin verð sem væri
í jafn miklu ósamræmi við virði félagsins og raun bar vitni. Forsenda kaupanda
til kaupanna hafi þannig brostið í verulegum mæli af ástæðum sem seljanda
bréfanna var eða mátti vera kunnugt um og hafi verið um galla í skilningi
kauparéttar að ræða. Var riftunarkröfu kaupanda hafnað en honum dæmdur
afsláttur. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði í málinu. Sjá kafla 5.3.
2.2 Kröfur sem gerðar eru til söluhlutar ef annað leiðir ekki af samningi
2.2.1 Almenn atriði
í 2. mgr. 17. gr. kpl. er í a-d liðum fjallað um þær kröfur sem gerðar eru til
eiginleika söluhlutar ef annað leiðir ekki af samningnum sjálfum. Skilyrði 2.
mgr. 17. gr. kpl. hafa sjálfstæða þýðingu gagnvart 1. mgr. ákvæðisins, en þó ber
þess að geta að sömu skilyrði leiðir yfirleitt af samningi.14 A svipaðri aðferða-
fræði er byggt í nkpl. Þar segir í 1. mgr. 15. gr. að söluhlutur skuli hvað varðar
tegund, magn, gæði, aðra eiginleika og innpökkun fullnægja þeim kröfum sem
leiðir af samningi. Síðan er talið upp í a-g liðum 2. mgr. 15. gr. hverja eiginleika
söluhlutur skuli hafa til að bera ef annað leiðir ekki af samningi. Kröfum kpl.
og nkpl. verður lýst hér á eftir í köflum 2.2.2-2.2.9 en þær eru í stuttu máli:
• söluhlutur henti í sama tilgangi og sambærilegir hlutir gera venjulega
• söluhlutur henti í ákveðnum tilgangi sem seljandi vissi um
• söluhlutur hafi sömu eiginleika og prufur og lfkön sem seljandi hefur
vísað til
• söluhlutur skal vera í venjulegum eða öðrum forsvaranlegum umbúðum
• söluhlutur skal vera í samræmi við væntingar neytanda um endingu o.fl.
• söluhlutur skal vera í samræmi við kröfur opinbers réttar
• söluhlutur skal vera laus við kvaðir af hálfu þriðja manns
• sérreglur sem gilda þegar kaupandi leggur sjálfur efnivið til söluhlutar
Rétt er að hafa í huga að hvorki upptalning 2. mgr. 17. gr. kpl. né upptalning
2. mgr. 15. gr. nkpl. eru tæmandi heldur eru þar nefnd í dæmaskyni nokkur
mikilvæg atriði sem þýðingu hafa við mat á eiginleikum söluhlutar. Til viðbótar
má nefna að venjulegur stóll verður t.d. að þola þyngd fullorðins manns og nýr
14 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 834.
202