Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 19
einkabíll verður að vera rykþéttur og hafa sömu lita- og lakkeiginleika og nýir
bílar hafa yfirleitt. Það að hlutur hefur ekki venjulegan endingartíma getur verið
galli. Of stuttur endingartími getur t.d. stafað af því að ekki hefur verið komið
í veg fyrir að bíll ryðgi óeðlilega. Takmarkað öryggi getur líka talist galli í
þessum skilningi, t.d. ef hlutur hefur ekki þá öryggiseiginleika sem kaupandinn
gat búist við samkvæmt markaðsauglýsingum. Reglur 2. mgr. 17. gr. kpl. víkja
að sjálfsögðu ef annað leiðir af samningi svo sem berum orðum er tekið fram í
upphafsorðunr ákvæðisins.15
Notagildi hefur á síðustu árum orðið þýðingarmeira í skilgreiningu og við
útlistun á gallahugtakinu í kauparétti. Er nú yfirleitt tíðkað að greina kröfuna
um notagildi í tvennt, þ.e. annars vegar hið almenna notagildi, sbr. a-lið 2. mgr.
17. gr. kpl., og hins vegar hið sérstaka notagildi sem kveðið er á um í b-lið sama
ákvæðis. A hinu sama er byggt í a og c-liðum 2. mgr. 15. gr. nkpl. og a og b-
liðum 1. mgr. 19. gr. fkpl.16
Verður nú gerð grein fyrir þeim skilyrðum sem fram koma í 2. mgr. 17. gr.
kpl. og 2. mgr. 15. gr. nkpl. um eiginleika söluhlutar og gilda þegar það verður
ekki leitt af samningnum sjálfum hverjir eiginleikar hlutarins skulu vera.17
2.2.2 Söluhlutur skal henta í þeim tilgangi sem sambærilegir hlutir eru
venjulega notaðir til - Hið almenna notagildi söluhlutar
í a-lið 2. mgr. 17. gr. kpl. er sá áskilnaður gerður að hlutur skuli henta í þeim
tilgangi sem sambærilegir hlutir eru venjulega notaðir til. Sjá til athugunar um
það efni H 1984 110 (fisksöltunarsalt), H 1989 40 (bifhjól), H 1991 1997
(jarðýta), H 1993 777 (salatpökkunarvél) og H 1993 709 (þakstál). Hlutur skal
með öðrum orðum fullnægja ákveðnum almennum lágmarksskilyrðum hvað
eiginleika varðar. Hins vegar er ljóst að ólíkir hlutir geta verið mismunandi að
gæðum án þess þó að sá lakasti teljist gallaður. Við mat í þeim efnum verður að
taka sanngjamt tillit til ýmissa atvika við kaupin, t.d. aldurs hlutarins og þess
verðs sem fyrir hann er goldið. Akvæðið felur það að öðru leyti í sér að hafi
hlutur ekki þá eiginleika til að bera sem sambærilegir hlutir hafa venjulega telst
hann gallaður, jafnvel þótt hlutinn megi nota í þeim tilgangi sem kaupandinn
15 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 834, og Alþt. 2002-2003, A-deild, bls. 3801.
16 Gallahugtak fasteignakauparéttarins er oft greint í almennan og sérstakan hluta. I a-lið 1. mgr.
19. gr. fkpl. kemur fram að fasteign telst gölluð, þ.e. í hinum almenna skilningi, ef hún hentar ekki
til þeirra afnota sem sambærilegar eignir eru venjulega notaðar til. Ibúðarhúsnæði sem ekki hentar
til þeitTa nota telst gallað samkvæmt a-lið 1. mgr. 19. gr. Sjá nánar Alþt. 2001-2002, A-deild, bls.
1464.
17 I 1. tl. 1. mgr. 9. gr. þjkpl. kemur fram að seld þjónusta telst gölluð ef árangur af unnu verki
stenst ekki kröfur samkvæmt 4. gr. laganna eða seld þjónusta víkur frá almennum öryggiskröfum
samkvæmt 5. gr. Samkvæmt 4. gr. laganna skal útseld þjónusta sem seld er í atvinnuskyni ávallt
vera byggð á fagþekkingu og í samræmi við góða viðskiptavenju sem tíðkast hverju sinni. Er skylt
að veita allar upplýsingar og leiðbeiningar um vinnu verks með hagsmuni neytenda fyrir augum.
203