Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 34
• upplýsingamar hafa verið gefnar á umbúðum, í auglýsingum eða við aðra
markaðssetningu
• markaðssetningin hefur farið fram á vegum seljanda eða fyrri söluaðila
• reglan gildir ekki ef seljandi hvorki vissi né mátti vita að upplýsingarnar
voru gefnar
• reglan gildir ekki ef upplýsingar er leiðréttar á skýran hátt og með næg-
um fyrirvara
Gildissvið 2. mgr. 18. gr. kpl. er takmarkað við þær upplýsingar sem veittar
eru við markaðssetningu en ekki skiptir máli hvemig hún hefur farið fram. I 2.
mgr. 18. gr. kpl. eru umbúðir söluhlutar og auglýsingar nefndar sérstaklega en
það er einungis í dæmaskyni. Seljandinn ber samkvæmt ákvæðinu ekki ábyrgð
á upplýsingum sem veittar eru í öðru samhengi en við markaðssetningu. Þegar
um markaðssetningu söluhlutar er að ræða ber seljandinn ekki einungis ábyrgð
áfyrri söluaðilum heldur einnig á öðrum sem sjá um markaðssetningu hlutar-
ins, t.d. framleiðandanum eða innflytjanda, en orðalagið takmarkar þetta þó við
þá sem annast markaðssetningu á vegum seljanda eða fyrri söluaðila. Af þessu
leiðir að utan gildissviðs ákvæðisins falla upplýsingar sem samkeppnisaðilar
hafa gefið um sambærilega hluti.39
3.4 Áhrif þess að upplýsingar eru leiðréttar
í 3. mgr. 18. gr. kpl. kemur fram sú undantekning að reglur 1. og 2. mgr. eiga
ekki við þegar upplýsingarnar eru leiðréttar á skýran og skilmerkilegan hátt og
með nægum fyrirvara. Sambærilegt ákvæði er ekki í nkpl. en hins vegar er slfkt
ákvæði að finna í 2. mgr. 27. gr. fkpl.
Ákvörðun um það hvenær upplýsingar koma nógu skýrt fram veltur m.a. á
efni þeirra, á hvern hátt þær voru gefnar, af hverjum og í hvaða tilgangi. Al-
mennt verður að krefjast þess að leiðréttar upplýsingar séu veittar á álíka áhrifa-
ríkan hátt og hinar upprunalegu upplýsingar voru veittar. Hafi upphaflegar
upplýsingar verið veittar kaupandanum beint og milliliðalaust er því ekki nóg
að leiðrétting komi fram í auglýsingu. Á hinn bóginn er einnig unnt að hugsa
sér þau tilvik að ekki nægi að leiðrétta upplýsingar í auglýsingum þótt upp-
haflegu upplýsingamar hafi verið gefnar með þeim hætti. Til þess að unnt sé að
halda því fram að leiðréttar upplýsingar hafi verið gefnar með nægum fyrirvara
verða þær að hafa verið til staðar með réttum hætti áður en kaup voru gerð. Ekki
er það skilyrði að leiðréttar upplýsingar séu komnar til vitundar kaupanda,
heldur nægir að þær hafi verið gefnar í tíma með þeim hætti að slíkt sé almennt
til þess fallið að geta leiðrétt rangan skilning kaupanda í sambærilegum tilvik-
urn. Ef seljandanum er ljóst í sambandi við kaupin að kaupandinn hefur ekki
skilið leiðréttinguna getur seljandinn ekki hagnýtt sér það.40
39 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 838, og Alþt. 2002-2003, A-deild, bls. 3805.
40 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 838.
218