Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Qupperneq 47
í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga um fasteignakaup
kemur fram að í 2. málsl. 2. mgr. 29. gr. fkpl. sé kveðið á um að reglan um rétt-
indamissi kaupanda vegna þess að hann hafi ekki sinnt aðgæsluskyldu sinni eigi
ekki við ef seljandi hefur sýnt af sér háttsemi sem telja megi stórkostlegt gáleysi
eða framferði hans stríði með öðrum hætti gegn heiðarleika og góðri trú.
Sjálfstætt gildi reglunnar takmarkist reyndar af ákvæði 3. mgr. Að því leyti sem
hún hafi sjálfstætt gildi feli hún í sér að saknæm háttsemi seljanda leiði til þess
að kaupandi haldi rétti sem hann ella myndi glata samkvæmt ákvæði 1. málsl.
Akvæði 2. málsl. nefni tvenns konar háttsemi seljanda, þ.e. stórkostlegt gáleysi
sem sé hlutlæg tilgreining og háttsemi sem sé andstæð heiðarleika eða góðri trú,
sem sé huglæg tilgreining, þ.e. vísi til vondrar trúar en gangi ekki svo langt að
gera áskilnað um svik. Viðmiðun við heiðarleika sé þekkt úr samningarétti, sbr.
33. gr. laga nr. 7/1936, með síðari breytingum, og viðmiðun við góða trú, bona
fide, sé einnig þekkt úr kröfurétti og skaðabótarétti.64
5.4 Rannsókn á sýnishornuni
Ef kaupandi hefur fyrir kaup rannsakað sýnishorn af söluhlut, eða látið það
hjá líða án gildrar ástæðu og galli varðar eiginleika sem sjá mátti af sýnishorninu,
gilda ákvæði 2. mgr. 20. gr. kpl. einnig um það tilvik. í því felst að kaupandi
getur ekki borið fyrir sig neina þá galla sem hann sá eða hefði átt að sjá við slrka
rannsókn á sýnishorninu. Hins vegar glatar kaupandinn ekki neinum rétti vegna
galla sem ekki var unnt að komast að raun um við rannsókn á sýnishominu.65
5.5 Rannsókn á söluhlut eftir afhendingu
I 20. gr. kpl. er eins og áður er fram komið fjallað unt afleiðingar þess að
kaupandi lætur hjá líða að rannsaka söluhlut áður en kaup gerast, en það ákvæði
leggur þó ekki neina sérstaka skyldu á kaupanda til að rannsaka söluhlut á þessu
tímamarki, og er áður að því vikið. I 31. gr. er á hinn bóginn lögð sú almenna
skylda á kaupanda að rannsaka söluhlut eftir að afhending hefur átt sér stað.
Vanræksla á þeirri skyldu getur samkvæmt 32. gr. kpl. leitt til þess að kaup-
andinn glatar rétti sínum til þess að bera fyrir sig galla með þeim hætti sem í 32.
gr. segir. Að öðru leyti verður að skoða reglu 31. gr. kpl. með hliðsjón af 2. mgr.
49. gr. sem veitir kaupanda færi á að rannsaka söluhlut áður en kaupverðið er
greitt. Segir þar að áður en kaupandinn greiðir kaupverðið eigi hann rétt á að
rannsaka söluhlut á venjulegan hátt ef það sé ekki ósamrýmanlegt umsaminni
aðferð við afhendingu og greiðslu kaupverðsins.
Regla 31. gr. kpl. felur það í sér að eftir afhendingu skal kaupandi, jafnskjótt
og sanngjamt tækifæri gefst til, rannsaka söluhlut á þann hátt sem góð venja
stendur til. Ef flytja á hlut frá afhendingarstað getur kaupandinn þó beðið með
rannsókn þar til hluturinn er kominn á ákvörðunarstað. En breyti kaupandi
64 Alþt. 2001-2002, A-deild, bls. 1469.
65 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 841.
231