Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 50
t.d. átt við skyldur seljanda sem samkvæmt samningnum ná til tímans eftir
afhendingu en seljandi vanrækir að sinna. Sem dæmi má nefna skyldu seljanda
til þess að setja hlutinn upp, pakka honum inn eða sjá urn flutning hans, sbr. H
1989 329 (dráttarvél) og dóm Hæstaréttar frá 15. mars 2001 í málinu nr.
243/2000 (Lundey ÞH 350). Seljandinn getur einnig hafa tekið á sig þær
skyldur að hafa ákveðið eftirlit með hlutnum og að halda honum við í ákveðinn
tíma eftir afhendingu.
H 1989 329 (dráttarvél)
H keypti dráttarvél af I. Hún reyndist gölluð og samkvæmt ákvörðun starfsmanna I
var hún llutt frá heimili H úti á landi til Reykjavíkur til viðgerðar. Samkvæmt
ábyrgðarskírteini undanskildi í sig ábyrgð á slíkum flutningi. Talið var, þegar
ábyrgðarskilmálamir væru virtir í heild sinni, að þeir veittu H ekki betri rétt en hann
átti samkvæmt kaupalögum og var ákvæði ábyrgðarskilmálanna um flutningskostnað
síðan dæmt ógilt á grundvelli 29. gr. laga nr. 56/1978.
Þetta ákvæði, þ.e. 2. mgr. 21. gr. kpl., gengur lengra en eldri lög því að
samkvæmt þeim bar seljandi því aðeins ábyrgð á göllum, sem fram koma eftir
afhendingu, að vanrækslu af hans hálfu væri um að kenna. I nýju lögunum getur
verið um vanefndir að ræða þótt seljanda sé ekki um að kenna. A hinn bóginn
felst það í orðalagi ákvæðisins að seljandinn verður ekki ábyrgur á grundvelli
kaupalaga vegna tjóns sem hann veldur á hlutnum eftir að skyldum hans í
tengslum við kaupin er lokið. Sem dæmi má nefna það tilvik þegar seljandi
kemur í heimsókn til kaupanda og veldur tjóni á söluhlut eða hann ekur á bíl
sem hann hel'ur selt og afhent kaupanda nokkrum dögum áður. í slíkum
tilvikum myndi ábyrgð seljanda ekki verða reist á reglum kaupalaganna heldur
á almennum reglum um bótaábyrgð utan samninga.71
Sambærilegt ákvæði er í I. málsl. 3. mgr. 18. gr. nkpl. Þar segir að seljandi
beri einnig ábyrgð á galla sem kemur fram síðar ef ástæðu gallans má rekja til
vanefnda af hans hálfu. Ákvæði þetta er í samræmi við 5. mgr. 2. gr.
Evróputilskipunar um neytendakaup. í fyrri málslið 2. mgr. 20. gr. fkpl. er regla
sama efnis. Þar segir að seljandi beri ábyrgð á galla sem fram kemur síðar, þ.e.
eftir þau tímamörk sem um ræðir í 1. mgr., ef orsakir gallans eru vanefndir af
hans hálfu.72
6.3.3 Ynrlýsing um ábyrgð af hálfu seljanda
Annað tilvikið kemur fram í síðari málslið 2. ntgr. 21. gr. kpl. en þar er gert
ráð fyrir því að seljandi geti borið ábyrgð á eiginleikum söluhlutar gagnvart
kaupanda ef hann með ábyrgðaryfirlýsingu eða öðrum hætti hefur ábyrgst að
71 Alþt. 1999-2000, A-dcild, bls. 842.
72 Um skýringu þessa ákvæðis fkpl. sjá Alþt. 2001-2002, A-deild, bls. 1465.
234